þjóðfáni Íslendinga og ríkisskjaldarmerkið.
Hæstv. forseti. Ég hygg að undir niðri séum við hv. þingmaður meira og minna sammála. Íslenski fáninn á náttúrlega að vera tákn alls hins besta sem við eigum, hvort sem það eru matvæli, þjónusta, hönnun, hvað sem er. Við höfum hins vegar verið allt of feimin, eins og ég sagði áðan og fer ofan ekki af því, við að sýna fánann og við eigum að hætta því, það er heimóttarlegt. Við eigum að vera stolt af íslenska fánanum eins og við erum stolt af því landi sem við búum í. Þess vegna eigum við að tengja hann öllu því besta sem við eigum, öllu því besta sem við gerum og gera hann að jafn verðmætu vörumerki, á smekklegan og tryggilegan hátt, og Ísland er að verða, sem betur fer.