144. löggjafarþing — 93. fundur,  21. apr. 2015.

verndarsvæði í byggð.

629. mál
[16:18]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég skil skýringu hæstv. forsætisráðherra þannig að í raun haldi ákvæði hverfisverndar sér í öðrum atriðum en því sem lýtur að verndun eldri byggðar eða annarra menningarsögulegra minja. Þá vil ég ítreka það sem ég sagði í ræðu minni að mjög mikilvægt er að þessi lög eða lagabálkar, verði þetta frumvarp að lögum, vinni vel saman, þ.e. skipulagslögin annars vegar og þetta frumvarp um verndarsvæði í byggð. Mér finnst mjög mikilvægt að við upplifum það ekki þegar lögin koma síðan til framkvæmda að þarna leynist einhver skörun. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, mér hefði fundist eðlilegast að þetta mál færi til hv. umhverfis- og samgöngunefndar, sem fer með skipulagsmálin, þannig að tryggð verði sem mest samfella í því hvernig við hanterum skipulagsmálin annars vegar og þetta mál. Út frá fyrsta lestri á þessu frumvarpi finnst mér að sjálfsögðu ætlunin og markmiðið vera menningarsögulegt, ef við getum sagt það, en það hefur líka í mjög ríkum mæli áhrif að minnsta kosti á skipulag. Þar gætu árekstrarnir orðið við framkvæmd og því tel ég mjög mikilvægt að það verði skoðað í samhengi.