144. löggjafarþing — 93. fundur,  21. apr. 2015.

verndarsvæði í byggð.

629. mál
[17:39]
Horfa

Óttarr Proppé (Bf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég þakka aftur andsvarið. Eins og ég sagði í fyrra svari mínu tel ég að þó svo að orðalag, um rétt og vald ráðherra, sé mögulega svipað í öðrum lögum þá tel ég það almennt ekki til fyrirmyndar að hafa hluti ekki góða vegna þess að þeir séu ekki góðir einhvers staðar annars staðar. Ég tel að það sé mjög skýrt í skipulagslögum í dag — og aftur til mikilla bóta í skipulagslögunum frá 2010 — annars vegar að skýra ferlið, hvernig skipulag er gert, hvernig samráði við almenning er háttað, hvernig aðkoma almennings er tryggð, bæði með upplýsingaskyldu og möguleikum almennings á beinni aðkomu að vinnunni og síðan samþykki ríkisins, stofnunar eða ráðuneytis, og samþykki endanlegu, og þá kæruferli, á skipulagsákvörðunum.

Ég held að þetta sé mjög skýrt í skipulagslögunum og ég hef áhyggjur af því að með því að taka ákveðinn hluta út og setja hér inn í sérlög, þar sem ekki er á sama hátt tryggt, eða slegið í gadda eins og sumir þingmenn mundu orða það, að þessi aðkoma og þessar kæruleiðir séu fyrir hendi — ég segi bara: Ég tel að það sé afturför og geti mögulega orðið til mikilla vandræða.

Ég tek undir með hv. þingmanni, ég hef áhyggjur af því og vænti þess að í áframhaldandi umræðu þurfi að skýra þetta.