verndarsvæði í byggð.
Virðulegi forseti. Við ræðum frumvarp til laga um verndarsvæði í byggð, frumvarp forsætisráðherra sem er ætlað að stuðla að vernd og varðveislu byggða sem hafa sögulegt gildi. Umræðan hefur orðið nokkuð til þess að skýra stöðu málsins og svo sem engin gagnrök verið til mikillar aðstoðar í því að útskýra fyrir manni á hvaða grunni forsætisráðherra leggur til að sjálfsákvörðunarréttur og skipulagsvald sé að þessu leytinu til tekið úr höndum sveitarfélaga eða hvaða rök eru fyrir því að breyta með afgerandi hætti því fyrirkomulagi sem hefur reynst vel. Því miður er það nú svo að hér er um að ræða mál sem fellur nokkuð vel í það munstur sem hefur verið að dragast upp varðandi fleiri þingmál frá hæstv. forsætisráðherra og raunar fleiri ráðherrum sem snúast um það að auka völd ráðherra, auka ráðherraræði í samfélaginu og auka miðstýringu. Það er auðvitað afar bagalegt að sjá slíka þróun hjá ungum stjórnmálamönnum í nýrri ríkisstjórn og er í raun og veru mjög mikið á skjön við þá þróun sem hefur verið í meginatriðum í löggjöf á Íslandi og í löndunum í kringum okkur að því er varðar valddreifingu og aukna möguleika almennings til að koma að ákvarðanatöku, sérstaklega að því er varðar nánasta umhverfi.
Hér er rætt um tvennt, annars vegar er rætt um markmið og hins vegar er rætt um leiðir. Þannig að það sé sagt án nokkurs hiks deili ég þeirri skoðun hæstv. forsætisráðherra að mikilvægt sé að búa vel um vernd og varðveislu byggðar og geri enga athugasemd við þau meginmarkmið. En hins vegar tel ég að sú aðferð sem hér er beitt sé ekki til góðs og það sé raunar einfaldlega þannig að hægt sé með réttu að halda því fram að hér sé farið á skjön við meginreglur stjórnsýsluréttarins þar sem verið er að færa vald úr höndum þeirra sem hafa faglega þekkingu hjá sveitarfélögum og í gegnum mjög ítarlega skilgreindan samráðsfarveg við almenning til ráðherra, því það orðalag sem kemur fram í frumvarpinu, með leyfi forseta, er mjög eindregið. Talað er um í 4. mgr. 4. gr. frumvarpsins að:
„Ráðherra getur einnig falið Minjastofnun Íslands að útbúa tillögu um að tiltekin byggð, sem að mati ráðherra hefur varðveislugildi á landsvísu, verði gerð að verndarsvæði í byggð.“
Virðulegi forseti. Hér er að mínu mati án nokkurs efa verið að fara á svig við meginreglur stjórnsýsluréttarins íslenska, vegna þess að hvernig má það vera að það standist almennar málsmeðferðarreglur og lögmætisregluna að það dugi í lagabókstaf að eitthvað hafi varðveislugildi að mati ráðherra? Punktur. Aukinheldur fer þetta algjörlega í bága við meginmarkmið núgildandi skipulagslaga. Ég sé ekki betur en að skipulagslögin í heild séu í húfi, að það dugi ekki í raun og veru að ganga um þau eins og hér er lagt til, þar sem lagt er til að ákvæði skipulagslaganna falli niður sem varða menningarsögulegar minjar og þau ákvæði sem lúta að hverfisverndinni falli niður og þar með sé nóg að gert að því er varðar skipulagslögin. Í skipulagslögunum — sem er lagafrumvarp sem sú sem hér stendur mælti fyrir árið 2010 og urðu þá loks að lögum eftir að skipulagsráðherrar allra flokka á Alþingi höfðu mælt fyrir málunum. Af hverju var það? Það var vegna þess að það krafðist mjög ítarlegs og breiðs samráðs við sveitarstjórnarfólk af öllu landinu að komast að þeim niðurstöðum sem felast í þeim skipulagslögum sem þá voru ákveðin. Það er ekki eins og þau skipulagslög hafi verið einhver hefðbundin meirihlutalöggjöf sem minni hlutinn setti sig á móti á sínum tíma, heldur er þetta löggjöf sem var unnin og til lykta leidd hér í þingsal í þverpólitísku samráði og í ítarlegu samráði við sveitarstjórnarstigið.
Það er ætlun aðalskipulags á hverjum tíma að vera vettvangur stefnumótunar. Aðalskipulag er vettvangur stefnumótunar sveitarstjórnar í samráði við íbúa. Þetta er í raun og veru stef sem er leiðarstef í gegnum alla skipulagslöggjöfina á Íslandi, þ.e. að kjörnum fulltrúum, sveitarstjórnarfulltrúum, sé ætlað að vinna slíka stefnumörkun, bæði sem varðar ráðstöfun lands en ekki síður framtíðarsýn fyrir samgöngukerfi, fyrir byggðamunstur o.s.frv. í samráði við íbúa sveitarfélagsins.
Því finnst mér það verulegt umhugsunarefni hvort það sem kemur hér fram í 4. gr. og áður er vitnað til, þ.e. að tiltekin byggð sem að mati ráðherra hafi varðveislugildi, fari í bága við það sem er nú meginþráður núgildandi skipulagslaga og það þyrfti til að koma þessu við að endurskoða markmiðsgrein skipulagslaganna vegna þess að hér er verið að tala um tiltekna þætti þar sem ekki er horft til sjónarmiða og tillagna íbúanna. Ekki er horft til annarra þeirra sem hagsmuna eiga að gæta um mörkun stefnu, sem í skipulagsreglugerð frá 2013 er sagt að skuli gera með virkri samvinnu við íbúa og aðra hagsmunaaðila frá upphafi skipulagsferlisins. Ekki einungis auglýsingatímanum eins og stundum er talað um, heldur skulu upplýsingar um skipulagsferlið og gögn sem varða skipulagsgerðina vera aðgengileg á vinnslutímanum öllum. Þetta er lykilatriði vegna þess að þetta varðar ekki bara einstakar greinar skipulagslaganna eins og hér er verið að fjalla um, heldur varðar bara ef ég má gerast ljóðræn, sálina í skipulagslöggjöfinni sem snýst um þessa breiðu sátt.
Hér hefur verið fjallað um tilvísanir í náttúruverndarlög sem feli í sér einhverja slíka heimild ráðherra, minjalög o.s.frv. Það er allt saman satt og rétt að slík ákvæði er að finna í löggjöf, en hins vegar er það svo að bæði framkvæmd þeirra laga, hvort sem eru náttúruverndarlög eða minjalög, og breytingar á löggjöfinni á undanförnum 10, 20, 30 árum hafa allar verið í þá veru að auka aðkomu almennings og draga úr miðstýringu. Það er þróunin í íslenskri löggjöf og löggjöf í löndunum í kringum okkur í öllum þessum málaflokkum. Það er ekki endilega einfalt fyrir ráðherra sem brennur fyrir málaflokki að átta sig á því eða lúta þeirri megintilhneigingu í löggjöf, en nauðsynlegt er að gera það, vegna þess að ef við tökum einn svona lítinn hluta út úr og segjum sem svo: þarna er eitthvað sem einn tiltekinn ráðherra brennur fyrir á einhverjum tilteknum tíma og þar með er málinu gert hátt undir höfði, það felur í sér þá hættu að þeim lýðræðislega grundvelli sé varpað fyrir róða og að málið gjaldi fyrir það í fyllingu tímans, að það verði í raun og veru fyrir skakkaföllum sem hæstv. ráðherra sér ekki fyrir meðan hann er að mæla fyrir málinu og sér væntanlega fyrir sér einhverja tímalausa framtíð í embætti. Það er okkar lýðræðislega skylda að löggjöfin sé þannig að hún sé landi og þjóð til hagsbóta inn í langa framtíð, en snúist ekki um það að skapa okkur sem einstaklingum hagfelld og notaleg starfsskilyrði til að geta sinnt áhugamálum okkar um einhvern skilgreindan eða óskilgreindan tíma.
Í skipulagsreglugerð um aðalskipulagið segir að byggðaþróun sé partur af því sem aðalskipulagið á sérstaklega að fjalla um. Það er mjög vandséð að hægt sé að fjalla um byggðaþróun og framtíðarsýn í aðalskipulagi og þessi þáttur sé tekinn út fyrir sviga. Það er mjög vandséð að það sé hægt eða að sveitarfélögin þurfi með einhverjum hætti að búa sig undir einhverjar hugmyndir forsætisráðherra á hverjum tíma sem gangi út og suður eða norður og niður eftir atvikum og sé ekki endilega í samræmi við framtíðarsýn sveitarfélagsins á hverjum tíma.
Í skipulagsreglugerðinni er líka tekið fram að það skuli afmarka verndarsvæði samkvæmt skipulagslögum. Ég velti fyrir mér, virðulegur forseti, hvort hæstv. skipulagsráðherra, ráðherra umhverfis- og auðlindamála, hafi komið að því að taka ákvörðun um það að tilteknir þættir skipulagsreglugerðar verði felldir úr gildi með tilkomu þessara laga ef það verður allt saman úr, því að það kemur skýrt fram að það skuli gera grein fyrir gildandi stefnu aðalskipulags og ákvæðum laga um friðun og vernd, þar með talið hverfisvernd þar sem skuli afmarka verndarsvæði og merkja friðaðar og friðlýstar menningarminjar sem njóta verndar og gera grein fyrir skilmálum sem um það gilda og auk þess að marka stefnu til framtíðar sem byggð sé meðal annars á húsakönnun.
Þetta er hluti af því sem kemur upp í hugann. Ég vil líka, virðulegur forseti, gera um það formlega tillögu hér, og ég held að rétt sé að það verði gert, og í fullri vinsemd tel ég að forseti þurfi í samráði við flutningsmann að beina vinnu við frumvarpið til hv. umhverfis- og samgöngunefndar. Því að eins og kemur fram í athugasemdum við lagafrumvarpið á bls. 4, þá sé samkvæmt þessu ekki ætlunin að hrófla við lagasetningu um menningarminjar. Lagasetningin um menningarminjar er ósnert. Það sem verið er að snerta við í þessu frumvarpi eru skipulagslögin.
Virðulegur forseti. Ég held að einsýnt sé að þó að sannarlega sé hér um að ræða einhvers konar markatilvik þá eru það skipulagslögin sem þarf fyrst og fremst að rýna með hliðsjón af því frumvarpi sem hér er lagt fram. Ég tel raunar að það sé tilvinnandi og væri hægt að gera það í góðri þverpólitískri sátt, því að ég heyri ekki að menn séu almennt efnislega á móti því að búa vel að menningarminjum og sögulegri byggð, að það fari betur á því að freista þess að koma efnisatriðum frumvarpsins haganlega fyrir í núgildandi skipulagslögum. Ég tel að það sé ekkert sem mælir á móti því að það verði gert og vil hvetja stjórnarmeirihlutann til þess að íhuga þá nálgun, því að ég tel að í grunninn séu markmiðin hér til góðs.
Það sem er kannski mesta áskorunin, fyrir utan þetta samspil við skipulagslögin, er að tryggja þessa skýru aðkomu almennings ef menn aðlaga ekki hreinlega efnisþætti frumvarpsins betur að núgildandi skipulagslögum því þar er auðvitað aðkoma almennings mjög skýr í gildandi skipulagslögum. Þá þarf maður ekki að fara í þá handavinnu aftur því þá falla þessir ferlar þar inn og almenningur hefur skýran aðgang að því. Það er sem sagt þetta með samspilið við skipulagslögin og skýra aðkomu almennings. Svo hef ég fengið um það ábendingar að hér kunni að vera mjög alvarleg gloppa að því er varðar bæði kæruleiðir og mögulegan bótarétt, ekki síður þá stöðu sem í raun og veru núgildandi deiliskipulag (Forseti hringir.) og byggingarheimildir o.s.frv. hafa frammi fyrir löggjöf af þessu tagi sem er auðvitað spurning sem (Forseti hringir.) hefur ekki verið svarað með ítarlegum hætti við þessa umræðu.