144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

vísun skýrslna Ríkisendurskoðunar til nefndar.

[15:01]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfi, dagsettu 20. apríl, hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, við stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að hún fjalli um eftirfarandi skýrslu frá Ríkisendurskoðun, skýrslu um rekstur og starfsemi sendiskrifstofa Íslands; skýrslu um samninga um æskulýðsrannsóknir, skýrslu um bílanefnd ríkisins og ársskýrslu Ríkisendurskoðunar 2014.