144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

hugmyndir um stöðugleikaskatt.

[15:06]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Já, eins og komið hefur fram bæði hjá mér og hæstv. fjármálaráðherra er von á frumvarpi um stöðugleikaskatt. Hafa aðrir kostir verið skoðaðir og metnir? Já, það hefur svo sannarlega verið gert í heilmikilli vinnu sem staðið hefur nú vel á annað ár. Er eftir einhverju að bíða, eru fleiri kostir sem þarf að líta til, er undirbúningsvinnan vel á veg komin, er hún að klárast? Já.