144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

afnám verðtryggingar og fleiri stjórnaraðgerðir.

[15:13]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Ég þakka svörin. Það er nú þannig með þessa samráðsnefnd að hún er bundin trúnaði, fulltrúar í þeirri nefnd bundnir þagnarskyldu, og hún hefur ekkert fundað síðan þessar stóru yfirlýsingar áttu sér stað á landsfundi Framsóknarflokksins. Mér finnst þannig samráð ekki nægilega gott. Það ætti að vera hefð fyrir því að það væru fundir til upplýsingar og ef það er einlægur vilji hæstv. forsætisráðherra að við förum sameiginlega í þessa vegferð þá er mjög mikilvægt að við vitum hvert við erum að fara saman og til þess eiga að vera samráðsfundir. Mér finnst það mjög mikilvægt. Ég óttast að hæstv. forsætisráðherra sé að einangrast þarna í forsætisráðuneytinu eins og hann gagnrýndi annan forsætisráðherra á síðasta kjörtímabili fyrir.

Þess vegna mundi ég vilja leggja til að hæstv. forsætisráðherra einbeitti sér að því að verða betri forsætisráðherra en sá forsætisráðherra sem hann miðar sig gjarnan við.