afnám verðtryggingar og fleiri stjórnaraðgerðir.
Virðulegur forseti. Ég verð að ítreka það sem ég sagði áðan að sumt í þessari vinnu er þess eðlis að það er æskilegt að upplýst sé um það, annað er þess eðlis að það þjónar ekki hagsmunum þjóðarinnar að upplýst sé um það. Það sama á við svo ég ítreki það, af því hér voru áður nefndar einhverjar fréttir um viðræður við kröfuhafa, að það getur þjónað hagsmunum Íslands að upplýsa þá jafnvel um ákveðna hluti án þess að fara í samningaviðræður við þá. Jafnframt er mikilvægt að upplýsa fulltrúa flokkanna eins og nokkur kostur er um gang mála, en þegar menn lenda í því að upplýsingar leka út af fundi, að því er virðist úr nokkrum áttum og menn rjúka jafnvel í viðtöl til þess að túlka hlutina á eigin hátt, þá hljóta menn að taka tillit til þess í framhaldinu.
Hér sé ég að hv. þm. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, biður um að ræða fundarstjórn forseta og það kemur mér ekki á óvart í þessu tilfelli.