144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

afnám verðtryggingar og fleiri stjórnaraðgerðir.

[15:15]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Þessi ummæli hæstv. forsætisráðherra eru fullkomlega ósæmileg. Hann beit höfuðið af skömminni þegar hann sagði hér nánast berum orðum að sá seki um trúnaðarbrotið væri hv. þm. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar. Þetta er fullkomlega ósæmileg framganga af hálfu hæstv. forsætisráðherra og röng. Hér erum við þingmenn stjórnarandstöðunnar og jafnvel einn tiltekinn nafngreindur bornir röngum sökum af hæstv. forsætisráðherra á lágkúrulegan hátt. Hið rétta í þessu máli er að dagana fyrir nefndan samráðsfund í byrjun desember voru að birtast upplýsingar, aðallega í Morgunblaðinu, m.a. um að til stæði að leggja á 35–40% útgönguskatt og annað þar fram eftir götunum. Það komu engar nýjar upplýsingar fram í fjölmiðlum eftir þennan fund. Engar. Það er hægt að sanna með því að fara yfir umfjöllun fjölmiðla dagana á undan. Í einhverju geðvonskukasti starfsmanns í fjármálaráðuneytinu var sendur tölvupóstur um að þarna hefði átt sér stað eitthvert trúnaðarbrot sem er innstæðulaust með öllu. Það er ósæmilegt af hæstv. forsætisráðherra að nota þetta svona. (Forseti hringir.) Dragi hann ekki ummæli sín til baka og biðjist afsökunar á þeim þá sé ég ekki að annað sé fært en að hverfa frá (Forseti hringir.) öllu sem á að heita samráð við þessa ríkisstjórn. Svona er ekki hægt að misnota (Forseti hringir.) samskipti af þessu tagi. (Gripið fram í.)