144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

afnám verðtryggingar og fleiri stjórnaraðgerðir.

[15:17]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti gerði þau mistök að hefja umræðu um fundarstjórn forseta áður en dagskrárliðnum var lokið. Samkvæmt þingsköpum ber að ljúka dagskrárliðnum sem var óundirbúinn fyrirspurnatími og forseti vill því í samræmi við það fresta umræðu um fundarstjórn forseta og ljúka umræðunni undir liðnum óundirbúinn fyrirspurnatími. Forseti hefur tekið niður mælendaskrá sem hann gerir þá ráð fyrir að við hefjumst handa við á eftir.