ásakanir forsætisráðherra um trúnaðarbrest.
Virðulegi forseti. Þessi hegðun hæstv. forsætisráðherra er hluti af mynstri sem ég mundi vilja spyrja hæstv. forsætisráðherra út í, en hann er ekki hérna með okkur lengur, farinn eitthvert fram. Mynstrið virðist vera þannig að það á að gera eitthvað, alveg sama hvað það er, og það fer fyrir þingið og er ýmist settur samráðshópur eða lagt fram frumvarp eða eitthvað. En svo ákveður hæstv. forsætisráðherra að gera það einhvern veginn allt öðruvísi, bara á eigin spýtur. Þegar hann er inntur eftir svörum um það þá er þingið ekki nógu gott, þá hagar það sér ekki nógu vel, þannig að hann gerir þetta bara sjálfur til þess að þurfa ekki að vera að ómaka sig með þessu Alþingi.
Þetta hugarfar, þessi hegðun er ekki í boði í lýðræðisríki. Þess vegna mundi ég vilja spyrja hæstv. forsætisráðherra, ef hann væri ekki flúinn, hvaða virðingu hann þættist bera fyrir þingræðinu. Ef hann telur þingræðið ekki nógu gott á Íslandi hvað ætlar hann að gera til að laga það, annað en að sölsa til sín öll völd sem eftir eru á landinu?