144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[17:58]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Nei, við þurfum svo sem ekkert að vera hissa þó að það sé hægri blær á þessu plaggi. Það er svo sem við því að búast. En maður gæti spurt: Voru framsóknarmenn búnir að stúdera þetta alveg? Vita þeir hvað þetta þýðir þegar kemur að næstum tvennu fjárlögum, að það verður eiginlega ekkert hægt að gera, það verður ekkert hægt að bæta í í vegamálum eða annars staðar? Hafa menn áttað sig á því? Ég sé ekki annað en að þetta sé ávísun á það.

Stendur til að hrófla við skattkerfinu og draga úr tekjujöfnuninni? Ég rauk beint í þann kafla og las hann en mér til nokkurrar ánægju er eiginlega ekkert nýtt sagt um það. Það er bara vísað inn í einhver framtíðaráform, en þegar ég skoða síðan það útgjaldasvigrúm sem ætlað er í skattbreytingar er það eyrnamerkt öðru, lækkun tolla og slíkum hlutum. Ég ræð það af þessu að áformin um einhverjar breytingar, a.m.k. sem hefðu í för með sér tekjutap í tekjuskattskerfinu, séu ekki komin lengra inn í framtíðina og er það vel.

Ég segi að afkomubatinn sé allt of daufur, já, og ég geri það líka með hliðsjón af því sem hér segir um sveitarfélögin. Það eru mjög mikil vonbrigði að sjá á bls. 47 í áætluninni að menn gera ekki ráð fyrir því að afkoma sveitarfélaganna batni eiginlega neitt á næstu fjórum árum. Hún verður nánast í járnum, halli næstu tvö eða þrjú árin og svo örlítill afgangur 2019. Sveitarfélögin verða áfram undir núllinu eða við núllið næstu fjögur ár. Þess þá meiri ástæða væri til að ríkið næði vopnum sínum betur en þetta.

Tekjujöfnunin gerist aðallega með tvennum hætti í okkar kerfi, í gegnum það hvernig teknanna er aflað, að það sé gert með prógressífum hætti, en enn mikilvægari er jöfnunin sem á sér stað í gegnum ráðstöfun teknanna, að tryggja mönnum skóla án skólagjalda og aðgang að heilbrigðisþjónustu óháð tekjum. Það er enn þá meiri jöfnun á aðstöðumun og launamun í landinu. Þeim mun veikari sem sú jöfnun er, (Forseti hringir.) þeim mun minni sem samneyslan er, þeim mun veikara er velferðar- og jafnréttissamfélagið.