144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:00]
Horfa

Valgerður Bjarnadóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður veltir fyrir sér hvort þingmenn Framsóknarflokksins hafi skoðað þetta og sjái þá framtíðarsýn sem hér er teiknuð upp. Ég tek svo sem undir þær vangaveltur hv. þingmanns, ekki síst í ljósi greinar sem ég held að hafi birst í Fréttablaðinu í dag eftir hv. þm. Silju Dögg Gunnarsdóttur þar sem hún talar um mikilvægi samfélagshjálpar og um jöfnuð í þjóðfélaginu. Mér sýnist þetta ekki stefna í þá átt. Þá verður fróðlegt að spyrja sérstaklega framsóknarþingkonurnar út í þetta sem tala mikið um jöfnuð og félagslegt réttlæti en virðast hins vegar styðja ríkisstjórn sem hverfur mjög frá því.

Getur hv. þingmaður útskýrt aðeins nánar fyrir mér eitt? Hann segist ekki sjá þess stað í þessari áætlun að það sé pláss fyrir byggingu Landspítalans. Gæti hann farið aðeins betur með mér í gegnum það hvernig hann les það út úr þessu plaggi?