ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég er alveg sammála því varðandi lífeyrissjóðinn að við þurfum að ná tökum á honum svo þetta hellist ekki yfir okkur einn góðan veðurdag og ríkissjóður ráði ekki við verkefnið. Það er eitt af því einmitt sem við höfum rætt mikið í fjárlaganefnd. Ég er hins vegar ekki alveg með á hreinu að rekstraráætlun sýni fram á að við þurfum ekki að taka fyrir því lán heldur verði þetta eingöngu rekstrarafgangur upp á 5 milljarða ár hvert sem verður þá eyrnamerktur í þetta.
Þrátt fyrir að við séum vonandi að ná aðeins utan um S-merktu lyfin hef ég áhyggjur af þeim af því að við höfum ekki verið að taka inn ný lyf. Spítalinn hefur þurft að geyma allt slíkt að mestu leyti og þess vegna tel ég að það hafi myndast uppsöfnuð þörf sem á eftir að koma fram. Þess vegna spyr ég hvort það standist sem hér er lagt fram.
Ég nefndi öldrunarmálin. Það er nefnt í greinargerðinni að áfram eigi að halda með leiguleiðina og mér finnst það jákvætt, en það kallar á aukna fjármuni í Framkvæmdasjóð aldraðra. Fór fram hjá mér að gert væri ráð fyrir þeim einhvers staðar í þessari áætlun?