144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:23]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Við ræðum tillögu til þingsályktunar um ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016–2019. Það er mjög vel. Það er rétt sem kom fram hjá hæstv. ráðherra, það eru ýmis jákvæð teikn á lofti, en eðli málsins samkvæmt skal ávallt gæta varúðar þegar kemur að opinberum fjármálum. Við skulum hafa í huga hver stóru málin eru þegar kemur að ríkisfjármálum. Það er ánægjulegt að umræðan hefur að stærstum hluta verið þar.

Stóru málin eru einfaldlega skuldir ríkissjóðs, lífeyrisskuldir, breytt aldurssamsetning þjóðarinnar og síðan auðvitað þróun ríkisútgjalda. Við erum núna á þeim stað í skiptingu útgjalda eftir málaflokkum að þar eru heilbrigðismálin stærst og síðan koma almannatryggingar og velferðarmál. Þetta eru langstærstu þættirnir en samt ekki langt undan er útgjaldaliður sem við verðum að lækka, vaxtagjöld ríkissjóðs. Á meðan vaxtagjöldin eru svona há erum við skipulega að skerða lífskjör barnanna okkar og barnabarnanna. Vaxtagjöldin eru það há að þau eru hærri á hverju ári en sem nemur öllum framlögum okkar til reksturs Landspítalans og Sjúkratrygginga. Inni í þeim þáttum eru ekki ákveðnar skuldir sem við þurfum að greiða. Eitt er eitthvað sem við vonum að við þurfum aldrei að greiða, ríkisábyrgðir, en þær eru 1.300 milljarðar. Ég held að flestir haldi að það sé fyrst og fremst í virkjunarframkvæmdum. Svo er ekki, 900 milljarðar af þessum 1.300, ein og hálf íslensk fjárlög, eru til komnir vegna Íbúðalánasjóðs. Ég held að við séum með vitlausasta kerfi sem hægt er að hafa í húsnæðismálum. Það hefur kostað okkur gríðarlega fjármuni og heimilin ekki síður. Vaxtagjöldin snúa bara að þessum hefðbundnu ríkisskuldum, það sem er fyrir utan þetta eru lífeyrisskuldbindingarnar sem voru í B-deildinni um 400 milljarðar í árslok 2012. Ef ekki hefði verið greitt inn á það árin 1999–2008 — sá aðili sem stóð helst fyrir því var þáverandi hæstv. fjármálaráðherra og forsætisráðherra, Geir H. Haarde — væru þetta ekki 400 milljarðar, heldur 600 milljarðar. Fékk viðkomandi einstaklingur litlar þakkir fyrir. Greiðsluþrot B-deildar og Lífeyrissjóðs hjúkrunarfræðinga, sem við erum líka í ábyrgð fyrir, verður 2027. Þá verður greiðsluþrot á þessum lífeyrissjóðum og þá þarf að greiða sem svarar 20 milljörðum meira úr ríkissjóði í tíu ár og síðan fara þær greiðslur lækkandi.

Hér hefur verið minnst á að við séum með há vaxtagjöld sem er alveg rétt í samanburði við aðrar þjóðir, en það verður samt sem áður að hafa í huga þegar við erum að bera okkur saman við aðrar þjóðir að á einum stað stöndum við mun framar, þ.e. þegar kemur að lífeyrissjóðum. Þær þjóðir sem við berum okkur saman við, jafnvel sterku þjóðirnar sem við berum okkur saman við, eins og Þjóðverjar og Frakkar, eiga nær engar eignir í lífeyrissjóðum. En það er alveg ljóst að þessar öldruðu þjóðir þurfa að greiða gríðarlegar fjárhæðir í lífeyri á næstu árum. Auðvitað eiga Grikkir ekki neitt eins og menn þekkja, en Þjóðverjar eiga bara 5,5% af vergri landsframleiðslu meðan við Íslendingar eigum 130%. Samt erum við mun yngri þjóð en Þjóðverjar. Þar er gegnumstreymiskerfi sem þýðir að ríkissjóður þeirra landa er skuldbundinn til að greiða lífeyri til þeirra einstaklinga sem komast á lífeyri.

Ég nefndi þriðja þáttinn sem er breytt aldurssamsetning. Þjóðin eldist mjög hratt. Þeim sem eru 67 ára og eldri mun fjölga um 50% á næstu tíu árum. Kostnaður við þá sem eru 65 ára og eldri í heilbrigðisþjónustunni miðað við tölur OECD er fjórum sinnum meiri en hjá þeim sem yngri eru. Við sjáum þá á næstu árum grundvallarbreytingu á íslensku samfélagi. Þeim sem eru eldri en 67 ára mun fjölga alveg gríðarlega. Samt erum við meðal yngri þjóða. Elstu þjóðir heims eru Þjóðverjar og Japanir. Ég sá í The Economist um daginn að Þjóðverjum mun fækka úr 80 milljónum í 60 milljónir á tiltölulega fáum árum, hvort það voru 20 eða 30 ár.

Þetta er ein af ástæðunum fyrir því að við þurfum að byggja nýjan spítala. Við sjáum gríðarlega aukningu í þörf fyrir legudaga hjá 60 ára og eldri á næstu árum, en það er engin þörf þrátt fyrir fjölgun meðal þjóðarinnar fyrir þá sem eru yngri en 60 ára. Fjölgunin fer úr 100 þúsund í 200 þúsund frá 2010 til 2050 þegar kemur að spítalanum. Á sama hátt þurfum við að byggja mörg hjúkrunarrými og í rauninni miðað við núverandi áætlanir ef við ætlum að eyða biðlistum og fjölbýlum þurfum við að byggja tvo nýja landspítala, einn hefðbundinn landspítala og annan sem væri hjúkrunarrými um allt land. Þar erum við að tala um gríðarlega mikla aukningu á útgjöldum þannig að við þurfum að forgangsraða í þágu grunnþjónustu. Lítið hefur verið talað um það og hér er ekki verið að fara í smáu hlutina.

Á bak við stóru myndina eru hins vegar útgjöld til einstakra málaflokka. Við höfum búið þannig um hnútana að þegar við erum að vinna í fjárlögunum getum við ekki einu sinni séð hver þróunin hefur verið varðandi fjárframlög til einstakra stofnana ríkisins. Því miður höfum við á undanförnum árum ekki forgangsraðað í þágu grunnþjónustunnar. Ný ríkisútgjöld voru á síðasta kjörtímabili til dæmis rannsókn á falli íslensku bankanna, kostnaður við þjóðfund, stjórnlaganefnd og stjórnlagaráð, rannsóknarnefndir Alþingis, saksóknara Alþingis, landsdóm, umboðsmann skuldara, ESB-umsókn sem að vísu er vanreiknuð upphæð, kosningu til stjórnlagaþings, þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs og kynningu. Allt þetta eru 7,2 milljarðar kr. Einhver hefði nú sagt að það hefði verið skynsamlegra að nýta þessa fjármuni í tækjakaup á Landspítalann eða einhverja aðra grunnþjónustu. Þetta eru 7.200 millj. kr. í ýmsa þætti sem ég held að flestir muni því miður ekki þykja merkilegir þegar menn skoða söguna.

Ef við skoðum einstakar stofnanir á árabilinu 2007–2012, því að það er betra en að bera þær saman 2008 sem var svolítið bólgið frumvarp eins og við þekkjum, hefur forgangsröðunin ekki verið á einstaka stofnanir í heilbrigðisþjónustu eða félagsþjónustu heldur fyrst og fremst á eftirlitsiðnaðinn, ýmsar undirstofnanir umhverfisráðuneytisins, einstaka menningarstofnanir og svo utanríkismálin. Þetta er það sem við höfum forgangsraðað í og þetta er röng forgangsröðun, virðulegi forseti, og við verðum að taka stóru tölurnar. Það er það sem við þurfum að ræða, en við þurfum líka að fara ofan í reksturinn hjá okkur því að við þurfum að nýta fjármunina betur.

Á þessu kjörtímabili, þvert á það sem menn hafa margoft haldið fram, sýna tölurnar að sem betur fer hefur verið forgangsraðað í þágu heilbrigðisþjónustu og velferðarmála. Ef við skoðum framlögin til Landspítalans sjáum við að þau hafa hækkað um 20% frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Ef það hefði bara verið hækkað samkvæmt verðlagi væri framlagið til Landspítalans núna 5,6 milljörðum lægra. Ef við viljum miða við launavísitölu væri framlagið til Landspítalans um 3 milljörðum lægra. Framlögin til heilbrigðismála hafa hækkað um 1%, virðulegi forseti, sem hlutfall af ríkisútgjöldum á þessu kjörtímabili. Svipaðar tölur eru í gangi varðandi velferðarmálin.

Stóra málið er að við þurfum að huga sérstaklega að því sem við getum kallað heildarstefnumótun í málefnum aldraðra. Við þurfum fjölbreyttari úrræði. Við verðum að setja sveigjanleika í starfslok, jafna réttindaáherslu og hækka lífeyrisaldur. Við verðum að forgangsraða í ríkisrekstrinum, bara eins og allar fjölskyldur og fyrirtæki hafa þurft að gera. Sumt þarf undan að láta. Við verðum að hagræða í ríkisrekstrinum. Við verðum að selja eignir, eins og hæstv. ráðherra nefndi, til að greiða niður skuldir. Það er ekkert vit að greiða alla þessa vexti. Og við þurfum aga í ríkisrekstri. Agi í ríkisrekstrinum þýðir einfaldlega að það verður að fara eftir fjárlögum. Það hefur verið vandi á Íslandi að við höfum ekki gert það. Ef við viljum komast á sama stað og þau lönd sem við berum okkur saman við verðum við að gera það.

Við vorum í Svíþjóð um daginn og heimsóttum helstu stofnanirnar sem um þessi mál fjalla. Þá var það enn og aftur staðfest að þar komast stjórnmálamenn ekkert upp með að lofa einhverjum hlutum sem þeir standa ekki við. Ef þeir vilja setja aukna fjármuni í eitthvað verða þeir að útskýra hvaðan þeir peningar eiga að koma. Á sama hátt komast forstöðumenn ekki upp með það að fara fram úr í sínum stofnunum, sama hvaða stofnanir það eru.

Stóra málið í þessu öllu saman er síðan að við þurfum að auka verðmætasköpun. Við gerum það meðal annars með því að einfalda skattkerfið og lækka álögur. Það er ánægjulegt að sjá að þess sjást merki í þessari langtímaáætlun þó að við þurfum að ganga lengra. (Forseti hringir.) Við verðum að ganga lengra í að forgangsraða í grunnþjónustuna og við þurfum að ganga lengra í skattalækkunum. En þetta er svo (Forseti hringir.) sannarlega mjög gott plagg og góð byrjun, virðulegi forseti.