144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[18:36]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er alveg rétt, við erum sammála um mjög margt eins og hv. þingmaður fór yfir. Hún fór yfir ýmsa þætti sem mér finnast mjög áhugaverðir. Ég er kannski ekki alveg tilbúinn að skrifa upp á að ég sé stjórnmálamaður sem hafi það sem eitthvert sérstakt markmið að lækka skatta fyrir þá sem mest hafa. Ég geri það ekki. Ég veit hins vegar að ef við hækkum skatta of mikið á þá sem mest hafa geta þeir farið, það eru þeir sem geta farið hvert sem þeir vilja. Til dæmis greiða ríkustu Íslendingarnir ekki skatta á Íslandi, þeir skipta sér af ýmsu á Íslandi en þeir greiða ekki skatta hér, þeir velja sér bara einhverja aðra staði því að þeir geta gert það sem þeir vilja. Svo getum við velt fyrir okkur hvort við viljum fá eitthvað af þessum skatttekjum eða ekki. Það er annað mál.

Það er rétt hjá hv. þingmanni varðandi unga fólkið, sem betur fer fjölgar okkur enn þá, svo maður tali bara hreint út, fólk er að eignast börn, en ég hef áhyggjur af fjölskyldustefnunni. Ég hef áhyggjur af húsnæðismálunum og ég hef áhyggjur af því að það sé verið að gera fjölskyldufólki erfiðara fyrir. Mér finnst að við þurfum að standa okkur betur hvað það varðar.

Virðulegi forseti. Hér eru stóru tölurnar. Hér er ekki verið að fara inn á einstaka þætti. Þetta plagg er í samræmi við þær áherslur sem ríkisstjórnin hefur haft. Ríkisstjórnin hefur haft þær áherslur og við getum bara séð það beint í tölum eins og ég fór yfir varðandi framlögin til heilbrigðismála. Þau hafa hækkað og framlög til velferðarmála hafa hækkað. Við verðum að fara þá leið.

Ég held hins vegar að þegar kemur að fjárfestingum þurfum við að gera betur. Við þurfum að forgangsraða meira. Það er það sem ég tel að við þurfum að gera. Það er ekki sundurgreint á einstaka liði hér. Við verðum að fjárfesta meira. Það er verkefni okkar. Mér fannst vera samhljómur í salnum um það en síðan þegar kemur að því að forgangsraða (Forseti hringir.) gæti orðið erfiðara að ná saman.