ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir og er ánægð að heyra þetta með að við eigum samleið í tekjuskattsmálunum, heyrist mér. Það er þá væntanlega einhver fyrirvari á því sem hér kemur fram af hálfu þingmannsins varðandi meðal annars þessa stefnu.
Varðandi hitt málið sem ég spurði um er ekki endalaust hægt að spara í innkaupum og öðru slíku ef þetta á að vera til næstu ára. Ég er sammála því að við getum leitað hagræðis en ég hef áhyggjur af þessum stofnunum.
Annað sem ég hef aðeins velt fyrir mér eru óreglulegu liðirnir á bls. 33 eða aðallega á bls. 40. 160 milljarðar eru óreglulegir liðir. Ríkisendurskoðun segir okkur að óreglulegir liðir séu ekki til í reikningshaldi nema um einskiptisaðgerðir sé að ræða. Þá spyr ég: Hvernig ætlum við að hafa áhrif á þessa liði? Við erum ekki beinlínis (Forseti hringir.) að taka þetta til umfjöllunar, þ.e. hvern lið fyrir sig, af því að þeir eru alltaf teknir út fyrir sviga.