144. löggjafarþing — 94. fundur,  22. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[19:05]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvar og spurningu sem snýr að óreglulegum liðum. Minn hefðbundni skilningur gagnvart reikningsskilum er sá að óreglulegir liðir séu þeir liðir sem koma fyrir óreglulega og í eitt skipti. Ég get þar af leiðandi ekki annað en tekið undir það sjónarmið eitt og sér. Á bls. 40 eru tilteknir þessir liðir og hv. þingmaður kom ekki að neinum sérstökum lið, en hér er vissulega um að ræða háar fjárhæðir og stóra liði sem við eigum alveg vafalítið eftir að fara betur yfir þegar málinu verður vísað til nefndar.