144. löggjafarþing — 95. fundur,  27. apr. 2015.

Varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 2. varamanni á lista Sjálfstæðisflokks í Reykv. s., Áslaugu Maríu Friðriksdóttur, um að hún sjái sér ekki fært vegna anna að sitja lengur á Alþingi sem varamaður fyrir hv. 4. þm. Reykv. s., Pétur H. Blöndal.

Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Sigríður Á. Andersen.

Sigríður Á. Andersen hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.