kjarasamningar og verkfallsréttur.
Herra forseti. Þessi upptalning stenst bara enga skoðun, því miður. Við tökum ekkert í tekjuskatt í ríkiskassann af launum undir 240 þús. kr., bara ekki neitt. Þegar við breyttum tekjuskattslögunum færðum við viðmiðunarmörkin upp fyrir þá sem greiða skatt í lægsta þrepinu. Þegar við tókum við voru þau um 240 þús. kr., þau eru núna 310 þús. kr. Þannig hafa þeir hópar sem eru í lægsta þrepinu, og sérstaklega þeir sem greiða bara skatt þar, fengið hlutfallslega mest út úr skattkerfisbreytingunum. Ég gæti haldið áfram að vinda ofan af vitleysunni sem hér kom fram, þetta er bara ekki rétt. Skattkerfisbreytingar okkar hafa skilað ríkinu meiri tekjum í ríkiskassann, það er vegna þess að við settum 38 milljarða á slitabúin og fjármálafyrirtækin sem fyrri ríkisstjórn gerði ekki. Það er ekki vandi dagsins í dag. Okkar sameiginlega verkefni er að bæta kjörin í landinu. Það verkefni gengur vel. Nú þarf bara að halda þannig á spilunum á næstu dögum og næstu vikum að menn komist að sameiginlegri niðurstöðu (Forseti hringir.) um að halda lífskjarasókninni áfram. Það er verkefnið. (Forseti hringir.) Það er vel hægt að gera það og þó að ekki hafi mikið gerst undanfarna daga í að leysa málið þá heldur vinnan bara áfram.