siðareglur ráðherra og túlkun þeirra.
Virðulegi forseti. Fréttir undanfarna daga leiða hugann að mikilvægi siðareglna, en siðareglur ráðherra voru staðfestar í mars 2011. Rétt er að hafa það í huga að ein af niðurstöðum skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis var að mikilvægt væri að ríkisstjórn og Alþingi settu sér siðareglur, en siðareglur ráðherra voru hins vegar tilbúnar og staðfestar. Við erum ekki búin að samþykkja hér siðareglur Alþingis en vonandi stendur það nú allt til bóta.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hæstv. forsætisráðherra, hefur einmitt verið spurður út í siðareglur ráðherra. Þá kom fram að hann teldi að reglurnar frá 2011 ættu enn við og að ekki hefðu nýjar reglur verið samþykktar, en þó kæmi til greina, eins og hann orðaði það, að ráðast í breytingar á reglunum. Í framhaldinu lagði forsætisráðherra fram frumvarp um breytingu á lögum um Stjórnarráð Íslands, sem nú er til meðferðar í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, þar sem gert er ráð fyrir því að nefnd um siðferðileg viðmið fyrir ráðherra og stjórnsýsluna verði lögð niður. Forsætisráðuneytið mun samkvæmt frumvarpinu gefa stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglna, þ.e. forsætisráðuneytið eitt.
Því er hér spurt: Eru siðareglur ráðherra frá árinu 2011 enn í gildi að mati forsætisráðherra? Í ljósi þess að nefnd um siðferðileg viðmið hefur enn ekki verið endurskipuð þá spyr ég: Hefur forsætisráðuneytið tekið að sér strax og nú þegar það hlutverk að gefa stjórnvöldum ráð um túlkun siðareglna eða hyggst forsætisráðherra skipta um skoðun og stofna slíka nefnd á nýjan leik í ljósi þess að ekki virðist vanþörf á í núverandi ríkisstjórn?