144. löggjafarþing — 95. fundur, 27. apr. 2015.
fjöldi óundirbúinna fyrirspurna.
Það er hárrétt sem komið hefur fram í máli nokkurra þingmanna að forseti gerði mistök. Mistökin fólust í því að kynna til leiks fyrirspyrjanda þegar sá mældi tími sem var til fyrirspurna var liðinn. Á það var bent og því dró forseti í land og kynnir annað dagskrármálið sem tekið er fyrir.