144. löggjafarþing — 95. fundur,  27. apr. 2015.

sérstakt framlag til húsaleigubóta.

719. mál
[16:19]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Sigríður Ingibjörg Ingadóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég ætla að lýsa áhyggjum yfir því að þessir fjármunir séu ekki komnir inn í húsaleigubótakerfið. Fyrir hverja voru þeir hugsaðir? Þessar 400 milljónir áttu að auka ráðstöfunartekjur fólksins sem ekki fékk höfuðstólslækkun, fólksins sem er með hækkandi leigu og fólksins sem hefur tekið á sig hækkað matvælaverð. Margir í þessum hópi eyða hlutfallslega meira af sínum ráðstöfunartekjum í matvæli en þeir sem til dæmis nutu höfuðstólslækkunar.

Ég þakka jafnframt hæstv. ráðherra þá hreinskilni sem fram kemur í svari hennar, en hvet til þess að þessar 400 millj. kr. verði notaðar eigi síðar en nú um mitt ár til að auka stuðning við leigjendur og hækka þar með ráðstöfunartekjur þeirra. Þessar 400 millj. kr. geta á engan hátt talist af fjármálaráðuneytinu eða ríkisstjórninni hluti af kostnaði við að innleiða nýtt húsnæðisbótakerfi. Þetta var það sem var notað í fjárlagaumræðunni til að friða óánægjuraddir, til að friða Framsóknarflokkinn sem lýsti sig fyrst algjörlega mótfallinn matarskatti, sætti sig síðan við hækkun þó að hún væri ekki alveg jafn mikil og hún átti að vera, m.a. vegna þess að það átti að koma með sérstöku framlagi til móts við leigjendur. Það er ekki hægt að svíkja það loforð. Það er stöðug umræða um versnandi stöðu leigjenda vegna hækkunar á leiguverði. Það þarf auðvitað að auka framboðið af leiguhúsnæði til að draga úr því með stofnstyrkjunum sem sitja fastir í ríkisstjórninni, en það verður ekki litið fram hjá því að það verður að koma til móts við þennan hóp sem hefur ekki notið þeirra 80 milljarða sem tekjuhæstu heimilin fengu (Forseti hringir.) 51% af.