ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni spurninguna. Í fyrsta lagi er það alveg rétt sem hv. þingmaður segir, það blasir við að samfara hækkandi vöxtum bæði á alþjóðlegum mörkuðum og hér innan lands muni vaxtareikningur ríkisins hækka á næstu árum. Það kemur líka fram í áætluninni. Það er rétt sem hv. þingmaður segir, tiltrú á ríkið skiptir auðvitað máli þegar kemur að vaxtakjörum, það eru ekki einir og sömu vextirnir á ríkisskuldum evrulanda. Þegar óvissa hefur verið sem mest eins og í tilviki Grikklands og Írlands hafa komið tímar þar sem áhættuálag á þessi ríki hefur farið upp fyrir þau kjör sem Íslandi hafa boðist. Staðan er hins vegar einfaldlega sú núna að öll evruríki fá lægri vexti á ríkisskuldir sínar en Ísland, umtalsvert lægri. Jafnvel ríki sem hafa miklu hærra skuldsetningarhlutfall, eins og Írland, fá mjög góða vexti, Grikkland líka þar til nú að óvissa hefur aukist um stöðu Grikklands í kjölfar stjórnarskipta en Grikkir fengu á síðari hluta síðasta árs kjör sem voru miklu hagstæðari en þau sem Íslandi buðust.
Það er mikið umhugsunarefni að jafnvel ríki í mjög alvarlegum skuldavanda sem geta varla náð að tryggja félagslega samstöðu um niðurgreiðslu skulda sinna skuli samt fá betri kjör á skuldir sínar en íslenska ríkið. Það segir okkur að vaxtagrunnurinn sem við búum við er okkur óhagstæður. Það er gríðarleg vantrú og auðvitað áhættuálag sem fylgir íslenskri krónu og fylgir Íslandi sem sjálfstæðu myntsvæði. Það hefur verið fullkomlega horft fram hjá því hversu mikinn ávinning í efnahagslegum viðsnúningi opin og frjáls viðskipti á gjaldeyrismörkuðum og aðgangur að (Forseti hringir.) lánum á alþjóðlegum mörkuðum hefði haft fyrir Ísland. Við sjáum þetta í tilviki allra Eystrasaltsríkjanna. Þau hafa náð miklu hraðari viðsnúningi en við. Við sjáum það líka í tilviki Írlands, þar hafa menn náð hraðari viðsnúningi en við. Við erum föst í viðjum hafta, hárra skulda og mikillar vaxtabyrði.