144. löggjafarþing — 96. fundur,  27. apr. 2015.

ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.

688. mál
[17:29]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka þetta svar og tek undir það sem hv. þingmaður sagði hér. Mér finnst alveg óskiljanlegt hvað menn þráast við varðandi þennan gjaldmiðil okkar. Við erum ekki einu sinni byrjuð að tala um kostnaðinn við að halda hér úti gjaldeyrisvaraforða og að heimili skuli ekki kalla eftir lægra vaxtastigi fyrir húsnæðislán sín og sleppa við gengisáhættuna. Það er merkilegt að við séum ekki að ræða hver framtíðargjaldmiðill þessa lands á að vera hér á hverjum einasta degi, en þannig er það nú ekki. Kannski þurfum við að vera duglegri að setja það á dagskrá.

Á bls. 40 er verið að tala um óreglulega liði og það eru framlög til Íbúðalánasjóðs. Þar er gert ráð fyrir 2,3 milljörðum 2016 og 1 milljarði 2017 og síðan er í rauninni ekkert meira, þ.e. ríkið mun ekki leggja Íbúðalánasjóði til meira fjármagn. Mér finnst vanta, sérstaklega hvað varðar Íbúðalánasjóð, aðra liði hérna sem kallast óreglulegir, einhverja stefnumótun til framtíðar og hvað raunverulega er verið að gera. Við vitum alveg að vandamál Íbúðalánasjóðs eru mjög mikil.

Í ljósi þess að hv. þingmaður hefur reynslu bæði sem ráðherra og þingmaður og þekkir þetta kannski betur en ég er ég bara að velta fyrir mér hvort þetta sé raunhæft. Við fyrstu sýn finnst mér við ansi bjartsýn að gera ráð fyrir að við þurfum ekki að leggja sjóðnum til meira fé frá árinu 2018. Skortir ekki bara aðgerðir varðandi Íbúðalánasjóð, einhvern veginn að reyna að sjá fyrir hvernig við ætlum að gera þetta og takmarka kostnaðinn sem skattgreiðendur borga í raun af því að reka Íbúðalánasjóð á ríkisábyrgð?