ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að fagna því að við séum í fyrsta skipti með þingsályktunartillögu um ríkisfjármálaáætlun til fjögurra ára sem hefði átt að leggja fram í fyrra en þá var fengin undanþága. Þetta er ágætisplagg þó að ég hafði kannski búist við því að maður gæti betur séð stefnu stjórnvalda. Ég sakna þess líka að ekki sé verið að tala um skiptingu útgjalda, þ.e. ramma. Þetta er gott eins langt og það nær, en það eru nokkur atriði sem mig langar aðeins til að fjalla um.
Við hv. þingmenn höfum verið að tala um skuldirnar. Þær lækka vissulega sem hlutfall af vergri landsframleiðslu en ekki að nafnvirði. Í því er fólgin áhætta vegna þess að við erum með gríðarlega háan vaxtakostnað. Eins og hér hefur komið fram erum við að greiða meiri vaxtakostnað sem hlutfall af vergri landsframleiðslu en öll aðildarríki Evrópusambandsins. Það er mikið áhyggjuefni. Við vitum líka að vaxtakjör eru alla jafna nokkuð hagstæð. Þótt við fáum greinilega verri kjör en margir aðrir eru vextir samt lágir um þessar mundir, einfaldlega vegna þess að í mörgum löndum er beinlínis verðhjöðnun þannig að það er verið að ýta undir neyslu og að efnahagurinn fari af stað. Það þarf ekkert mikið að gerast til þess að þessi vaxtakostnaður sem er núna 70–80 milljarðar á ári vaxi mjög mikið. Þess vegna er svo mikilvægt að lækka skuldirnar og lækka þær að nafnvirði. Ég verð að segja að ég hefði notað þá 80–100 milljarða sem fóru í skuldaniðurfellinguna í að greiða niður skuldir ríkissjóðs. Það hefði verið almenn skuldaniðurfelling, þ.e. við hefðum lækkað skuldirnar okkar allra. Það var hins vegar ekki gert.
Einnig hefur verið talað um fjárfestingarstigið og margir hafa lýst áhyggjum af því að lítið sé að gerast þegar kemur að fjárfestingu. Hér finnst mér stefnan nokkuð óljós nema að það eigi bara ekkert að gera. Það er talað um hönnun á meðferðarkjarna Landspítala – háskólasjúkrahúss og byggingu sjúkrahótels og verið að tala um rétt rúma 5 milljarða á þessu tímabili, fram til ársins 2019.
Svo segir, með leyfi forseta, á bls. 20:
„Sett er markmið um að fjárfestingarstig ríkisins haldist a.m.k. til jafns við fjárlög fyrir árið 2015 sem hlutfall af vergri landsframleiðslu, eða 1,2% af vergri landsframleiðslu. Það felur í sér að ný óráðin verkefni komi í stað þeirra sem lokið verður við á tímabilinu …“
Ef þetta á að vera eitthvert stefnumótandi plagg er ekki hægt að skrifa hér að ný óráðin verkefni komi í stað þeirra sem fyrir eru. Við erum að tala um fjögur ár fram í tímann og maður verður eiginlega að gera þá kröfu að við getum skipulagt stórar fjárfestingar fjögur ár fram í tímann nema það sé ekki verið að tala um annað en hönnun á meðferðarkjarnanum og sjúkrahótelið. Svo á að klára Norðfjarðargöngin, Hólmsheiði og það sem er þegar í gangi. Þetta finnst mér ósköp rýrt og kannski þurfum við aðeins að ganga betur eftir fjárfestingarstefnu ríkisins næstu fjögur árin. Felst hún í þessum nokkru setningum á bls. 20 og 21?
Síðan er annað sem ég rek augun í, stefnan í skattamálum á bls. 34. Ég tek eftir því varðandi endurskoðun virðisaukaskattskerfisins að það á að einfalda það. Þar er margt sem ég gæti alveg verið sammála, það getur verið gott að einfalda. Þegar vörugjöldin voru afnumin fannst mér það mjög gott skref. Jafnvel er verið að ýja að því að einhverjar breytingar verði varðandi ferðaþjónustu. Það sem ég tek þó eftir hérna er að talað er um að næstu þættir sem verði teknir fyrir séu áfengissala, vara og þjónusta sem keypt er frá útlöndum, m.a. netverslun, og mér finnst fagnaðarefni ef það á að skoða þetta meira. Skýrslu var skilað til fjármálaráðherra um netverslun og lagt til að flytja mætti inn litla pakka fyrir lægri upphæðir og þá var ekki verið að refsa neytendum fyrir það með því að láta þá greiða alls kyns gjöld. Ég hlakka til að sjá útfærsluna á þessu.
Það sem ég vildi aðallega ræða er að hér segir að það verði haldið áfram að einfalda og lækka tekjuskatt einstaklinga með því að draga úr bilinu milli lægstu skattþrepanna með það að lokamarkmiði að fella þau saman í eitt þrep. Það þarf að sannfæra mig um að þetta sé skynsamlegt. Þetta finnst mér pólitísk tíðindi ef þetta er markmiðið vegna þess að ég held að þrepaskipt skattkerfi sé góð leið til jöfnunar. Ég sagði í ræðu áðan við einn hv. þingmann um að hækkanir á lægra þrepi virðisaukaskatts hefðu meðal annars verið rökstuddar með því að það væri ekki gott tekjujöfnunartæki að vera með lágan virðisaukaskatt, jafnvel á matvælum. Hvernig ætla menn þá að reyna að jafna og láta þá sem mest hafa milli handanna leggja meira til? Þetta þurfum við að ræða við hæstv. ráðherra sem gæti komið í andsvar ef hann er einhvers staðar og útskýrt þetta.
Ég rek líka augun í S-merktu lyfin á bls. 36. Þetta eru allt gamlar fréttir hérna hjá mér. Þau hafa aðeins komið inn á borð hjá okkur í fjárlaganefnd vegna þess að vöxtur þeirra útgjalda hefur verið mikill og hér er gert ráð fyrir 3% vexti bæði hvað varðar ellilífeyri og S-merkt lyf og 2% í lífeyrisskuldbindingum. Þetta tel ég hugsanlega ekki raunhæft nema við ætlum þá bara ekki að taka inn nein ný lyf. Það má svo sem vel vera að það sé hugmyndin.
Ég hoppa aðeins til baka í skattana. Ég fagna því að sjá klausuna um netverslunina en sé ekkert um að það eigi til dæmis að fara í einhverja aðgerð til að lækka tolla á innfluttar landbúnaðarafurðir. Það virðist ekki vera stefnan.
Mig langar aðeins að gera athugasemdir við að óreglulegu liðirnir á bls. 40 séu kallaðir óreglulegir vegna þess að margt af þessu er ekkert óreglulegt frekar en eitthvað annað. Þá fyndist mér að við ættum alveg eins að setja rekstur Landspítala – háskólasjúkrahúss í þessa töflu eða greiðslur Tryggingastofnunar eða aðra liði sem rokka fram og til baka og eru oft yfir fjárheimildum. Þetta er nokkuð sem ég mundi vilja skoða aðeins betur, þ.e. nákvæmlega skilgreininguna á óreglulegum liðum. Af hverju tökum við einhverja svona óreglulega liði út fyrir sviga ef þetta eru ekki einskiptisgreiðslur, eitthvað sem síðan er bara farið eins og niðurfærslan á verðtryggðu húsnæðisskuldunum?
Áætlunin er áhugaverð og einhver tíðindi í henni en ég hefði gjarnan viljað sjá aðeins betur hver nákvæmlega stefna stjórnvalda er í mörgum málum, svo sem fjárfestingu.