ríkisfjármálaáætlun fyrir árin 2016--2019.
Virðulegur forseti. Já, ég vildi að ég hefði svarið við þessari spurningu um hvort almennt sé ekki mikil framlegð í þeirri grein, en hún skiptir okkur auðvitað gríðarlega miklu máli sérstaklega varðandi gjaldeyristekjurnar. Mér fannst það mjög skrítin ákvörðun, fyrsta mál ríkisstjórnarinnar 2013 á sumarþingi, að hætta við að hækka virðisaukaskatt á gistingu úr lægsta þrepinu í 14%; manni fannst að það væri eitthvað sem ferðaþjónustan ætti að geta staðið undir og hefði skilað okkur milljarði eða jafnvel tveimur í kassann. Það hefði verið nægur peningur til að standa undir framkvæmdum á ferðamannastöðum.
Það að hækka gistingu upp í 24% — það hlýtur í raun að vera markmiðið að á endanum séu engar ívilnanir. Ég get samt að vissu leyti skilið áhyggjur af því að ef gisting er orðin mjög dýr, eins og hún er til dæmis í Danmörku, geti það haft áhrif á ferðamannastrauminn. En við þurfum þá líka kannski bara að spyrja okkur: Hvað viljum við fá marga ferðamenn? Viljum við þá fá meira út úr þeim sem koma? Það getur alveg verið stefna. En þegar við tölum um stefnu hvað varðar ferðaþjónustuna þá hefur hún verið alveg ótrúlega ómarkviss.
Mér finnst það athyglisvert sem er í gangi núna þegar Bláa lónið er að takmarka aðgang að Bláa lóninu. Mér finnst það bera því vitni að menn gera sér grein fyrir að ekki er hægt að halda áfram á þeirri leið að hætta sé á að skemma upplifun ferðamanna. Þó (Forseti hringir.) að við græðum á því hér í dag þá er orðsporið kannski orðið þannig eftir fimm ár (Forseti hringir.) að fólk nennir ekki að fara í Bláa lónið. Þannig að mér finnst það mjög gott framtak hjá þeim.