144. löggjafarþing — 97. fundur,  28. apr. 2015.

lyfjalög.

645. mál
[22:18]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að gera grein fyrir þessu frumvarpi. Ég kem hér ekki beinlínis í andsvar heldur vil ég lýsa ánægju minni með frumvarpið.

Ástæðan er sú að lyf eru engin venjuleg vara og það er mjög mikilvægt að ákveðið eftirlit sé haft með þessari vöru og líka varðandi lyfjagát í því samhengi með því að greina, meta og skilja hugsanlegar aukaverkanir og fyrirbyggja að einhvers konar tilvik geti komið upp vegna aukaverkana sem geta haft skaðleg áhrif. Margir eru ekki nógu meðvitaðir og oft er maður sjálfur ekki nógu meðvitaður um þær aukaverkanir sem verkjalyf geta haft og heldur kannski að þau séu saklaus. Stundum hlær maður innra með sér og hugsar af hverju maður ætti að taka ákveðna töflu við höfuðverk þegar aukaverkanirnar geta verið mun meiri en einhver höfuðverkur, þótt þær séu sjaldgæfar. Það er mjög brýnt að fólk sé meðvitað og að þeir sem sýsla með lyf fylgi skráningarskyldum sínum og því sem reglurnar kveða á um. Það er mjög mikilvægt eins og þær tölur sýna sem fram koma í frumvarpinu, þ.e. að um 197 þúsund látast árlega innan svæða Evrópusambandsins vegna aukaverkana lyfja. Áætlað er að með þessu frumvarpi og lyfjagátinni megi bjarga fimm þúsund mannslífum.

Ég kom hingað til að fagna þessu frumvarpi og tel það vera til mikilla bóta.