144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Elín Hirst (S):

Virðulegi forseti. Ég ætla að vera á sömu nótum og hv. þm. Haraldur Einarsson var hér áðan. Nýlega komu á fund okkar nokkurra alþingismanna formenn SEM-samtakanna og MND-félagsins og þeir sögðu farir sínar ekki sléttar. Í kjölfarið voru þeir boðaðir á fund hjá umhverfis- og samgöngunefnd þar sem mál þeirra eru nú til umfjöllunar. Þessar upplýsingar komu fram hjá þeim: Á Íslandi eru um það bil 7 þús. einstaklingar í hjólastól. Segjum að meðaltal nærfjölskyldunnar sé 15 manns, það þýðir þá að 112 þús. einstaklingar eru í fjölskyldum þeirra sem eru í hjólastól eða eru sjálfir í hjólastól. Aðgengi fatlaðra snertir því þriðjung þjóðarinnar, hvorki meira né minna. Slæmt aðgengi er meginástæðan fyrir því að einstaklingar í hjólastólum missa tengsl við ástvini, vini, fjölskyldur, tengdafjölskyldur, vinnumarkaðinn og samfélagið í heild sinni. Á Íslandi eru 95% húsnæðis óaðgengilegt fólki í hjólastólum. Við íslenskar verslunargötur er aðgengi á bilinu 1–9% fyrir fólk í hjólastólum.

Svona lýsir Arnar Helgi Lárusson, formaður SEM-samtakanna, upplifun sinni, með leyfi forseta og með hans eigin leyfi:

„Ég upplifi mig sem byrði og þá sérstaklega þegar verið er að skipuleggja skemmtiferðir, svo sem fermingarafmæli, leikhúsferðir, bústaðaferðir o.s.frv. Þegar einhver uppgötvar að ég tilheyri hópnum þá fer allt í pat og oftar en ekki er haft samband og hætt við allt saman.“

Það er algjörlega óásættanleg aðstaða að búa í samfélagi sem þessu og ég tek heils hugar undir orð formanns SEM-samtakanna. Þetta er óásættanlegt (Forseti hringir.) 36 árum eftir að lög um aðgengi fatlaðra voru sett hér á landi.