störf þingsins.
Hæstv. forseti. Nýleg ummæli framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda vöktu athygli mína. Hann sagði í fjölmiðlum nýlega á þá leið, með leyfi forseta:
„Verslunin bíður eftir því að geta lækkað verð til neytenda.“
Þarna er átt við að Félag atvinnurekenda verið hefur í málaferlum við atvinnuvegaráðuneytið vegna endurgreiðslu útboðsgjalds vegna tollkvóta á búvörum. Þetta mál mun væntanlega fá verðuga afgreiðslu fyrir dómstólum en hér er haft eftir þessum ágæta framkvæmdastjóra, með leyfi forseta:
„Innflutningsfyrirtækin munu að sjálfsögðu halda áfram að leita réttar síns. Verslunin bíður eftir því að geta lækkað verð til neytenda. Það eina sem stendur í vegi fyrir því er þvermóðska embættismanna sem geta ekki sætt sig við að neytendur fái að njóta þess ábata sem fylgir frjálsum viðskiptum.“
Svo mörg voru þau orð. En verslunin er ekki óvön því að bíða eftir að geta lækkað verð til neytenda. Ég held að það væri mjög fróðlegt ef framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda gæfi það upp opinberlega hvaða þvermóðskufullu embættismenn komu í veg fyrir að verslunin skilaði ábata til neytenda af styrkingu krónunnar í eitt og hálft ár, sem staðfest var í nýlegri skýrslu Samkeppniseftirlitsins, og hvaða þvermóðskufullu embættismenn komu í veg fyrir að ábati af tollalækkun á nautahakksefni í fyrrasumar skilaði sér til neytenda og hvaða þvermóðskufullu embættismenn það voru sem forðuðu því að lækkun á sykruðum vörum kæmi til framkvæmda strax eftir áramót í kjölfar á skattbreytinga á þeim tíma.
Ég held að það yrði trúverðugri hljómur í málflutningi verslunarinnar ef það kæmi fram.