144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

703. mál
[15:46]
Horfa

Jóhanna María Sigmundsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Sú nefnd sem hæstv. forsætisráðherra talar um, óbyggðanefnd, hefur verið svolítið til umræðu á sviði sveitarfélaga því að eftir að hún var sett á fót fóru menn að grúska í landamörkum fyrir land sitt en það er ekki alltaf auðvelt að finna skýr landamörk um allt landið og eignarhald, sérstaklega jarðir sem eru búnar að vera í eigu sömu fjölskyldunnar í marga ættliði því að þá hefur kannski ekki verið pælt mikið í því hvar mörkin liggja við það land sem á að ganga að. Upp hefur komið ágreiningur um landamörk, það hafa komið upp illindi milli nágranna og erfitt hefur verið að finna gömul og jafnvel týnd gögn þó svo fólk viti hvar mörkin eru. Það þarf því að gæta þess að óbyggðanefnd gangi ekki hart fram. Það sýnir hve erfitt og dýrt verk það getur verið að sanna eignarhald en sú sönnun felst helst í ítrekuðum framlengingum á starfstíma nefndarinnar og hversu illa gekk eftir niðurskurðinn.

Mig langar að brýna það fyrir forsætisráðherra í þessu samhengi að línan á milli ríkis og sveitarfélaga er stundum allt of óskýr og einnig að lýsa ánægju minni yfir því að þess þurfi að geta hverjum beri að þinglýsa dómum sem falla í ágreiningsmálum því að réttur hins almenna borgara til að verja eignarrétt sinn verður að vera mjög skýr í þessu máli.