144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

þjóðlendur og ákvörðun marka eignarlanda, þjóðlendna og afrétta.

703. mál
[15:47]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa brýningu og góða ábendingu. Þetta er vissulega eitt af því sem þarf að skoða í þeirri vinnu sem fram undan er við að endurskoða þessi lög og meta hversu vel hafi tekist til. Ég hvet hv. þingmann til að halda þessum sjónarmiðum á lofti og hvet raunar alla hv. þingmenn í þeirri vinnu sem fram undan er í umfjöllun um þetta frumvarp til að koma með ábendingar sem geta nýst við endurskoðun laganna.