sjúkratryggingar og lyfjalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það eru misjafnar reglur um það hvernig Norðurlöndin hafa til dæmis leitt þetta inn. Danmörk — við erum að búa til sams konar kerfi og er þar. Noregur er með þetta algjörlega opið þannig að einstaklingarnir geta einfaldlega farið yfir landamæri og sótt sér þjónustu. Við tókum þann kost að setja þessa fyrirframsamþykkiskröfu inn af þeirri einföldu ástæðu að við gerum okkur ekki grein fyrir því í hvers konar magni þetta kynni að verða hér á landi og eins og kemur fram, bæði í greinargerðinni með frumvarpinu og í kostnaðarmatinu, erum við að renna dálítið blint í sjóinn með það hversu mikil notkun verður á þessu ákvæði.
Það er hins vegar óumdeilt að það er verið að styrkja rétt sjúklinga eða einstaklinga til að geta ferðast frjálst á milli landa og notið heilbrigðisþjónustu, en þó með þeim skilmálum sem tilgreindir eru í frumvarpinu þar sem eru í raun tilgreindir í mjög grófum dráttum, í 5. gr., þeir helstu þættir fyrirframsamþykkis sem þarf að uppfylla. Ég geri síðan ráð fyrir því að sú miðlæga stofnun sem kemur að þessu — bæði fyrir Íslendinga, sem kunna hugsanlega að vilja sækja sér þjónustu yfir landamæri vegna biðlista eða annarra þátta sem metnir verða gildir, og útlendinga, einstaklinga sem búa erlendis, sem vilja sækja í þjónustu hingað — þurfi að útbúa upplýsingarnar hjá Sjúkratryggingum Íslands sem munu sjá um framkvæmd og umsýslu.