144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

636. mál
[16:10]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Og jú, ég tel mig vera nokkru nær um það hvernig þetta mun virka. Hæstv. ráðherra kom að hluta til inn á það sem ég ætlaði að nota mitt síðara andsvar í að spyrja út í. Það er varðandi upplýsingarnar sem lægju fyrir, upplýsingar fyrir almenning sem vill geta nýtt sér þetta kerfi og mundi telja það sér til hagsbóta.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra aðeins betur um það hvort hann telji ekki mjög mikilvægt að til þess að þessi innleiðing virki sem skyldi þurfi að liggja fyrir mjög greinargóðar upplýsingar til að almenningur og þeir sem færa sér þetta í nyt viti að hverju þeir ganga. Þetta er nýtt og ég mundi telja líklegt að margir líti á þetta forvitnisaugum til að skoða hvort þetta sé eitthvað sem þeir gætu haft gagn af, hvort ekki þurfi að liggja fyrir mjög konkret upplýsingar um það hvenær sækja þurfi um fyrirframsamþykki, hverju fólk megi eiga von á og hvort farið sé að huga að einhverju slíku.