144. löggjafarþing — 98. fundur,  29. apr. 2015.

sjúkratryggingar og lyfjalög.

636. mál
[16:15]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Kristján Þór Júlíusson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Ég deili skoðunum þingmannsins á því að þetta er mjög tyrfinn texti og er í rauninni dálítið framandi að horfa til þess vegna þess að við höfum einfaldlega verið í okkar lokaða kerfi og í raun tiltölulega lítið spáð í þetta.

En vegna spurninga hv. þingmanns um það gagnvart hverjum þetta gildir þá er á bls. 6 í greinargerðinni með frumvarpinu áréttað að þær breytingar sem frumvarpið kveður á um snúa aðeins að rétti sjúkratryggðra til að sækja sér þjónustu yfir landamæri til annars EES-ríkis og óska eftir endurgreiðslu á kostnaði eingöngu í samræmi við þann kostnað sem greiddur er fyrir sambærilega þjónustu hér á landi. Í þessu felst það í raun að frumvarpið eins og það er gert úr garði hér veitir einungis heimild til að endurgreiða sjúkratryggðum þá þjónustu sem nú þegar er greitt fyrir hér á landi. Þau tilfelli sem hv. þingmaður nefndi eru áfram í þeim sama farvegi eins og við erum með, þ.e. í gegnum siglinganefnd sem tekur ákvarðanir um þá þætti heilbrigðisþjónustunnar sem hv. þingmaður spurði um.