144. löggjafarþing — 99. fundur,  30. apr. 2015.

sjávarútvegsmál.

[10:35]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að taka undir, og hef reyndar gert það fyrr úr þessum ræðustól, mikilvægi þess að við setjum í stjórnarskrá ákvæði um eign þjóðarinnar á auðlindum landsins. Undir það hafa bæði hæstv. forsætisráðherra og hæstv. fjármálaráðherra tekið úr þessum ræðustól. Ég tel það því mikilvægt og ég er sammála þingmanninum um það.

Varðandi hlutdeildarsetningu á makríl er líka rétt hjá hv. þingmanni að þetta er með talsvert öðrum hætti en þeim að við séum að setja makrílinn í hefðbundna hlutdeildarsetningu inn í kvótakerfið eins og það er fyrir. Þetta er tímabundin úthlutun og sett er viðbótargjald vegna þess að hér er um sérstæðan stofn að ræða. Það er skoðun mín og byggi ég hana á áliti umboðsmanns, sem benti á að síðustu ríkisstjórn var svo snemma sem á árinu 2011 skylt að hlutdeildarsetja makríl samkvæmt þeim lögum sem í landinu eru eða setja sérlög. Hér leggur sjávarútvegsráðherra og ráðuneytið fram mál sem búið er að mæla fyrir og er til umfjöllunar í þinginu um að setja sérlög sem byggja á þeim lögmætu væntingum sem m.a. síðasta ríkisstjórn, sem hv. þingmaður sat í sem ráðherra, gaf. Í þeim fólst m.a. að þeir sem stunduðu manneldisvinnslu mættu vænta þess að til þess yrði tekið við hlutdeildarsetninguna þegar kæmi að henni. Umboðsmaður Alþingis kvað upp úr með áliti sínu í fyrra að svo seint sem á árinu 2011 hefði verið í síðasta lagi skylt að hlutdeildarsetja makrílinn eða, eins og hann orðaði það, að hlutdeildarsetja makríl samkvæmt íslenskum lögum.