144. löggjafarþing — 99. fundur,  30. apr. 2015.

makrílfrumvarpið og auðlindaákvæði.

[10:47]
Horfa

sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegi forseti. Á síðasta kjörtímabili var íslenska kvótakerfið sérstaklega verðlaunað fyrir hversu vel það fúnkeraði við að nýta fiskstofna á sjálfbæran hátt, hversu ábyrgar veiðar þetta kerfi gæti sýnt fram á með athöfnum stjórnvalda á hverjum tíma og hversu þjóðhagslega hagkvæmt það væri. Ég veit ekki annað en að menn hafi tekið við þeirri viðurkenningu fyrir hönd Íslands við viðurkenndar alþjóðlegar skólastofnanir.

Það er rangt sem sagt hefur verið að hér sé verið að stíga einhver skref til að festa eitthvað í sessi. Hér er einmitt verið að stíga skref til sátta. Hér er ekki verið að setja makrílinn inn í ótímabundið kvótakerfi heldur er hann settur í tímabundna úthlutun til aðeins sex ára, sem ég tel vera það minnsta sem hægt er að gera til þess að fyrirsjáanleikinn nýtist atvinnugreininni (Forseti hringir.) og til þess að skapa sem mest þjóðhagsleg verðmæti fyrir alla Íslendinga. Það er eðlilegt að (Forseti hringir.) … sem svo sannarlega þarf með því viðbótargjaldi sem sett er á makrílinn, þá er það enn (Forseti hringir.) frekar tryggt.