höfundalög.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir viðleitnina en jafnframt taka undir það sem hefur komið fram í máli hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar og hv. þm. Róberts Marshalls. Þetta er mikið stílbrot á þeim samræðum sem áttu sér stað þegar verið var að semja um þessa dagskrá. Ég skil eiginlega ekki alveg hvað vakir fyrir forseta að framkalla stílbrot á svo viðkvæmum tíma sem við erum nú á í þinghaldinu.
Ég fagna því þó að við fáum tækifæri til að beina spurningum til ráðherra í ræðum okkar. Samt skerðir þetta mjög getuna til þess að fjalla um málin og tryggja að við séum með ítarlegar umræður um þau álitamál sem þessi frumvörp bera með sér.