144. löggjafarþing — 99. fundur,  30. apr. 2015.

efling ísaldarurriðans í Þingvallavatni.

42. mál
[18:38]
Horfa

Ásmundur Einar Daðason (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kristjáni Möller fyrir góða framsögu um þetta mál en vil þó segja í upphafi að ég hefði viljað sjá hv. þm. Össur Skarphéðinsson, 1. flutningsmann þessa máls, flytja málið. Mig langar að segja að sem mikill áhugamaður um stangveiði, og silung sérstaklega, vissi ég ekki mikið um ísaldarurriðann áður en ég kynntist hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni. Þegar hann rétti mér tímarit með viðtali við sig um það starf sem unnið hefur verið í Þingvallavatni, og hv. þm. Kristján Möller rakti mjög vel, fékk ég vaxandi áhuga á þessu. Við hv. þm. Össur Skarphéðinsson ræðum þetta oft, m.a. möguleikana á því hvort ísaldarurriðinn geti þrifist í fleiri vötnum sem ég ætla að koma inn á á eftir.

Ég tek líka undir með hv. þingmanni að þetta lætur kannski ekki mikið yfir sér en þegar maður skoðar ísaldarurriðann, rétt eins og hv. þingmaður rakti áðan, er einstakt að hann skuli hafa varðveist öll þessi ár. Mig langar að lesa örstutt úr greinargerðinni þar sem þessu er lýst, með leyfi forseta:

„Ísaldarurriðinn í Þingvallavatni hefur algera sérstöðu meðal þekktra urriðastofna. Hann er síðustu leifar stórvaxins urriða sem kom fram í lok síðustu ísaldar. Varinn af ókleifum fossum í Soginu hefur Þingvallaurriðinn lifað einangraður í níu þúsund ár og því aldrei blandast smærri urriða sem síðar nam vötn um Norður-Evrópu.

Ísaldarurriðinn býr yfir einstakri arfgerð sem einkum felst í háum aldri, síðbúnum kynþroska“ og annað sem ég vissi ekki fyrr en hv. þm. Össur Skarphéðinsson, 1. flutningsmaður málsins, sagði mér. Ísaldarurriðinn tekur hrygningarhlé sem fæstar aðrar silungategundir gera. Þegar hann er búinn að hrygna nokkrum sinnum tekur hann hlé í eitt eða tvö ár. Þetta er kenning frá hv. þm. Össuri Skarphéðinssyni sem hann vildi meina að ætti þó eftir að sannast og ég efast ekkert um það.

Það sem mig langaði að koma inn á og hvetja atvinnuveganefnd til að skoða í tengslum við þetta mál hef ég rætt við hv. þm. Össur Skarphéðinsson nokkrum sinnum. Ég tek fram að ég er ekki sérfræðingur á þessu sviði, en ég hvet til þess að það verði skoðað hvort mögulegt sé að finna fleiri vötn með hugsanlega sambærilegum aðstæðum og Þingvallavatn, þ.e. eru með bleikjustofn sem er með mikið af lítilli bleikju, eru með náttúrulegar hrygningaraðstæður þar sem urriði getur hrygnt, rennandi ár eða lindir, sem sagt skoðað að ísaldarurriðanum verði sleppt í fleiri vötn. Þetta var gert í tilraunaskyni í Skorradalsvatni árið 1974. Þá var í Skorradalsvatni lítill bleikjustofn og hornsíli, ekki ósvipað og í Þingvallavatninu, lítil og horuð bleikja. Hrygningarskilyrði eru til staðar, rennandi vatn og mögulegt fyrir urriðann að hrygna. Árið 1974 var svo tekin ein hrygna úr Öxará og sjóurriði úr Skaftafellssýslu og sleppt í Skorradalsvatn. Þarna hefði átt að taka bara urriða úr Þingvallavatni til athugunar vegna þess að þessi urriði er einstakur stofn, eins og hv. þingmaður lýsti, sem verður gríðarlega stór og er eini urriðastofninn í heiminum sem nær þessari stærð. Við Íslendingar eigum vötn sem við gætum hugsanlega notað án þess að ógna vistkerfi í til dæmis laxveiðiám. Það þarf að velja þessi vötn vel og athuga hvort það sé mögulegt að kortleggja hvort það séu hugsanlega fjögur, fimm, sex eða sjö jafnvel vötn á landinu sem gætu með sjálfbærum hætti borið ísaldarurriðastofn og hann hrygnt þar sjálfur. Þetta verða að vera vötn sem ekki er búið að sleppa urriða í, þetta verða að vera hrein bleikjuvötn, þetta verður að vera lokað vatnasvæði þannig að það ógni ekki náttúrulegum laxveiðiám. Mig langar til að sá sérfræðihópur sem lagt er til í þessari þingsályktunartillögu að settur verði á fót skoði það eða því verði velt upp í nefndinni hvort það sé mögulegt að bæta við 5. liðnum í þingsályktunartillögunni sem feli það í sér að skoða hvort ástæða sé til þess, í ljósi þess að við erum með þá gersemi sem ísaldarurriðinn er, að dreifa honum í svo og svo mörg vötn í viðbót til að tryggja frekari útbreiðslu hans. Rétt eins og hv. þingmaður kom inn á áðan er ég sannfærður um að ísaldarurriðinn á eftir að verða gríðarlega mikilvægur í framtíðinni og getur orðið mjög verðmæt auðlind. Við Íslendingar höfum skuldbundið okkur varðandi húsdýr til að verja líffræðilegan fjölbreytileika. Við varðveitum hér og erum búin að skuldbinda okkur í alþjóðasamningum til að verja íslenska geitastofninn, íslensku kúna, íslensku landnámshænuna, og um ísaldarurriðann á auðvitað að gilda það sama. Það hljóta að vera rök fyrir því að það sé skoðað hvort fleiri vötn gætu borið ísaldarurriðann.

Ég ætla ekki að lengja þetta meira en þetta er það sem mig langaði að koma hérna að. Mig langaði svo sannarlega til að eiga þessa umræðu við hv. 1. flutningsmann, Össur Skarphéðinsson, en vil segja að ef við förum með nútímatækni í að fjölga þessu fáum við úr hverri hrygnu um 5 þús. seiði. Það þarf ekki margar hrygnur og marga hænga til að koma þessu af stað í fleiri vötnum og það er það sem mig langar til að hv. atvinnuveganefnd skoði. Er því hér með komið á framfæri við hv. þm. Kristján Möller sem á sæti í atvinnuveganefnd.