landhelgi, efnahagslögsaga og landgrunn.
Hæstv. forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi um breytingu á lögum nr. 41/1979, um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn. Í þessu máli leggjum við til að við tökum upp svokallað aðlægt belti.
Þetta er í rauninni einföld breyting á lögunum. Efni þess í einföldu máli er að skilgreint verði svokallað aðlægt belti í skilningi 33. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna. Gert er ráð fyrir að nýjum kafla verði bætt í lögin þar sem aðlægt belti verði skilgreint og þau réttindi sem íslenska ríkið hefur á því aðlæga belti og þau verði tiltekin á sama hátt og gert er varðandi landhelgi efnahagslögsögu og landgrunn í I.–III. kafla laganna.
Hér er gert ráð fyrir að skilgreiningin verði sú að aðlægt belti sé svæði utan landhelgi sem afmarkast af línu sem alls staðar er 24 sjómílur frá grunnlínum landhelginnar, þ.e. við erum að bæta við það svæði 12 sjómílum, stækka lögsögu íslenska ríkisins er varðar ákveðna málaflokka um þær 12 sjómílur sem er heimilt samkvæmt 33. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna.
Íslensk stjórnvöld hafa í gegnum árin verið ófeimin og óhrædd við að taka af skarið og gera ýtrustu kröfur er varða hafréttindi og samskipti við önnur ríki um þau mál, en við höfum þó ekki nýtt okkur þann möguleika á að stækka lögsögu íslenska ríkisins. Segja má að umræðan um þessi réttindi hafi í rauninni aðeins dottið niður eftir að strandríkjum var heimilað að taka sér allt að 200 sjómílna efnahagslögsögu vegna þess að aðlæga beltið liggur auðvitað innan efnahagslögsögunnar, en það eru ekki sömu réttindi sem fylgja því vegna þess að réttindin sem fylgja efnahagslögsögunni taka ekki til þeirra málaflokka sem fylgja aðlæga beltinu. Þetta er allt saman skilgreint í samningnum.
Ef frumvarpið verður að lögum mundi fjölga þeim málaflokkum sem ríkið hefði forræði yfir á svæðinu, en hér er um að ræða að strandríkið gæti farið með nauðsynlegt vald annars vegar til að afstýra brotum á lögum og reglum á tolla-, fjár-, innflytjenda- eða heilbrigðismálum á landi eða innan landhelginnar, og hins vegar til að refsa fyrir brot á framangreindum lögum og reglum sem framin eru á landi eða innan landhelginnar.
Með því fengi Landhelgisgæslan rýmri heimildir til eftirlits í þessum mikilvægu málaflokkum og þess vegna mundi þetta styrkja stöðu okkar hvað varðar það að afstýra brotum á lögum og reglum í tolla-, fjár-, innflytjenda- eða heilbrigðismálum á þessu svæði.
Hæstv. forseti. Ég tel að málið sé það einfalt að það skýri sig sjálft, en ég vonast til þess að það fái góða umfjöllun í utanríkismálanefnd þar sem ég óska eftir að því verði vísað til að lokinni þessari umræðu.