samningur Sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra og öðrum þeim sem hafa tekið þátt í þessari allt of stuttu umræðu miðað við vægi og mikilvægi samningsins. Mig langar til að vinda mér í að spyrja hæstv. ráðherra nokkurra spurninga sem lúta að framkvæmdaáætlun varðandi stefnumörkun Íslands um líffræðilega fjölbreytni.
Í fyrsta lagi er þar lögð áhersla á að til verði vistgerðarkort af láglendi Íslands. Eftir því sem ég best veit er þeirri skráningu ekki lokið en mjög mikilvægt er að kortleggja þurrlendi, þar með talið ferskvatn og votlendissvæði, og fjörur landsins samtímis. Í skýrslu umhverfisráðuneytisins frá því á síðasta kjörtímabili kemur fram að hægt væri að ljúka þeirri vistgerðarkortlagningu á þremur til sex árum.
Náttúrfræðistofnun telur að gera megi ráð fyrir að lágmarki um 500–700 milljónum til að kortleggja þurrlendi og ferskvatn samkvæmt þeirri áætlun, en þessi skráning hófst á síðasta kjörtímabili og til þess fengust styrkir, en eftir því sem mér er best kunnugt var sú vinna stöðvuð af pólitískum ástæðum.
Í öðru lagi langar mig að spyrja um áherslupunkt í sömu skýrslu varðandi friðlýsingar en þar kemur fram að það beri að friðlýsa svæði í samræmi við náttúruverndaráætlun 2004–2008, sem er náttúrlega þarsíðasta náttúruverndaráætlun og hefur sannast sagna ekki gengið mikið fram í því. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um friðlýsingar á grundvelli náttúrverndaráætlunar, við förum líka betur í það síðar á dagskránni.
Svo í þriðja og síðasta lagi varðandi takmarkanir á dreifingu ágengra framandi tegunda, en þær eru náttúruvá sem þarf sérstaklega að gæta að, þ.e. þær tegundir sem eru (Forseti hringir.) ágengar í íslensku vistkerfi og hafa valdið usla og þarf að taka á með markvissum og skýrum hætti.