144. löggjafarþing — 100. fundur,  4. maí 2015.

verkefnisstjórn rammaáætlunar.

656. mál
[16:08]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að eyða tíma í að endurtaka það sem tveir hv. þingmenn sögðu á undan mér, heldur eingöngu að taka undir það.

Mig langaði hins vegar að nefna eitt sem við gleymum í umræðu sem þessari, og mér þykir líka við hæfi að nefna það í umræðunni um makríl, það er auðlindanýting og -stjórnun í mjög víðum skilningi. Þegar kemur að makrílnum þá vinnur Alþingi þar nokkuð með fyrri lagasetningar sínar. Og sömuleiðis hefur í þessu máli verið samþykkt áætlun en samt sem áður má benda á að hv. atvinnuveganefnd er fullkomlegt frjálst að bregða út af þessu fyrirkomulagi, vegna þess að við erum jú löggjafarþingið og við ráðum þessu.

Það undirstrikar að mínu mati að við þurfum að ræða betur hvernig við ætlum að haga þessum málaflokki í grundvallaratriðum. Ég legg til að það umræðuefni eigi að ræða í tengslum við stjórnarskrá, nánar tiltekið frumvarp stjórnlagaráðs til stjórnskipunarlaga.

Að lokum legg ég til að fundir fastanefnda Alþingis verið að jafnaði opnir.