144. löggjafarþing — 100. fundur,  4. maí 2015.

staðan á vinnumarkaði.

[16:48]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er áhugavert að heyra þessa umræðu hér og hafa fylgst með henni á undanförnum mánuðum. Eftir að vera búinn að kynna mér sérstaklega hvernig málin eru í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við, hlusta síðan á hv. þingmenn sem alla jafna segja: Við viljum vera eins og Norðurlöndin, við viljum vera eins og þessi lönd þar sem vinnubrögðin eru miklu betri og hvað þetta er allt saman, og hlusta eftir það á þá sömu þingmenn hér í ræðustól Alþingis, það er alveg ótrúlegt. Ég skal bara segja ykkur að ef hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar væru á Norðurlöndunum og mundu tala með þessum hætti, því að þeir fara í hvert einasta popúlistamál, alltaf, þeir klikka aldrei, þá væru þeir blásnir út af. (Gripið fram í.) Þeir komu hér og heimtuðu launahækkanir fyrir lækna, þeir heimtuðu það. Núna koma þeir og segja: Heyrðu, það var gengið allt of langt og þess vegna er þessi órói, ríkisstjórnin á bara að fara.

Orðum fylgja ábyrgð, líka hjá hv. stjórnarandstöðu. Í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við hafa menn vit á því að reyna ekki að leysa þessi viðkvæmu mál í þjóðþingum. Af hverju? Vegna þess að við getum það ekki. (Gripið fram í.) Við getum það ekki, virðulegi forseti. (Gripið fram í.) Engri þjóð hefur tekist að leysa kjaramál í ræðustól þjóðþinga. (Gripið fram í.) Ég vonast til þess að við náum samstöðu um að bæta kjör þeirra sem minnst hafa, ég vona að við náum samstöðu um að hafa stöðugleika, ég vona að við náum samstöðu um að halda verðbólgunni lágri, en við gerum það ekki (Forseti hringir.) með því að taka umræðuna eins og hún hefur verið, hvorki hér í þessum sal né í þjóðfélaginu.