staðan á vinnumarkaði.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. málshefjanda fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga efni í þinginu og eins hæstv. ráðherra fyrir ræðuna. Auðvitað þurfum við sem hér störfum að sinna þessu verkefni og nálgun við þetta stóra viðfangsefni af ábyrgð. Það sem fólkið í landinu þarf eru raunverulegar kjarabætur sem endast. Og hvernig náum við því? Meginmarkmið okkar á auðvitað að vera að halda verðbólgunni í skefjum. Til að fyrirtækin og atvinnulífið geti staðið undir hærri launum er alveg ljóst að það þarf að auka verðmætasköpun. Það er okkar hlutverk hér að skapa rammann utan um það með hvaða hætti það verður best gert. Við gerum það með sjávarútveginn og mér þykir umræðan um hann ekki alltaf vera á yfirveguðum nótum. Við gerum það með því að ræða með hvaða hætti við ætlum að sinna orkuöflun í landinu, hvaða tækifæri eru í því fólgin. Við erum hvorki öll sammála um hvort það eigi að virkja meira né þá hvenær né með hvaða hætti. Þetta er nokkuð sem við getum tekið okkur taki í. Það þýðir ekki að standa hér og saka hvert annað um að vera að æsa sig og missa sig í pontu ef við getum ekki einu sinni sest niður saman í nefndum og rætt málin.
Við eigum öll að líta í eigin barm. Við berum ábyrgð á því að umgjörð fyrirtækjanna og atvinnulífsins í landinu sé með þeim hætti að það sé hægt að auka hér verðmætasköpun. Við berum ábyrgð á því að skapa það umhverfi að verðbólgan sé í skefjum þannig að það verði raunverulegar kjarabætur sem haldi sér og skili sér til launþega og almennings í landinu á varanlegan hátt. Það hlýtur að vera sameiginlegt verkefni okkar allra. Eigum við ekki að vera sammála um það?