144. löggjafarþing — 103. fundur,  11. maí 2015.

kjaradeilur og breyting á skattkerfi.

[15:18]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Ég ætla mér líka að fjalla um kjaramálin og stöðu stjórnmálanna eins og þau blasa við. Staðreyndin er sú, og skýringin kemur kannski fram í svörum hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, að ríkisstjórnin glatar fylgi og tiltrú frá hverjum mánuði til annars. Forsætisráðherra á augljóslega í miklum ímyndarvanda sem er studdur könnunum og endurspeglast í samfélagsumræðunni. Vandinn er mjög margþættur en ekki síst endurspeglast hann í því að orð og athafnir stangast á, að stjórnarflokkarnir eru ekki sammála í hverju málinu á fætur öðru og við blasir að verkstjórn þessarar ríkisstjórnar er engin, hún er í molum. Það virðist enginn hafa yfirsýn. Ráðherrarnir eru einangraðir með sín mál og málin verða ýmist afvelta hér í þinginu eða ná ekki í gegn vegna viðnáms stjórnarandstöðunnar og úti í samfélaginu.

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarflokkanna segir, með leyfi forseta:

„Með aðgerðum sínum hyggst ríkisstjórnin einnig eyða þeirri pólitísku óvissu sem hefur verið of áberandi þáttur í íslensku þjóðlífi á undanförnum árum. Unnið verður að víðtækri sátt við aðila vinnumarkaðarins um þróun vinnumarkaðar og uppbyggingu til framtíðar.“

Það er nánast eins og hér sé eitthvert grín á ferð. Vinnumarkaðurinn er í sögulegu uppnámi. Alvarlegri verkföll og fjölmennari en um áratugaskeið og ábyrgð ríkisstjórnarinnar í kjaraviðræðum við opinbera starfsmenn er ótvíræð. Hvað þarf eiginlega til þess að ríkisstjórnin átti sig á því hversu alvarleg staðan er orðin? Og hvað gerist þá, virðulegur forseti?

Það ótrúlega útspil kemur fram að menn eru að ræða um að auka enn þann ójöfnuð sem er fyrir hendi í samfélaginu með því að leggja af þrepaskipt skattkerfi, eða að minnsta kosti fækka skattþrepum. Stendur virkilega til að læða inn í kjarasamninga hugmyndum frjálshyggjumanna í þá veru að fletja út skattkerfið? Styður Framsóknarflokkurinn það? Liggur það fyrir? Staðan í íslensku samfélagi er grafalvarleg og ef allar ytri aðstæður væru svona stórkostlegar eins og hæstv. ráðherra ítrekar hér í svörum sínum, af hverju er þá allt í klessu á Íslandi?