144. löggjafarþing — 104. fundur,  11. maí 2015.

áherslumál ríkisstjórnarinnar.

[16:21]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Eins og fram kom undir liðnum óundirbúnar fyrirspurnir þá er sögulegur ófriður í samfélaginu. Til viðbótar gerðust þau tíðindi að hér kom hver fulltrúi stjórnarandstöðuflokkanna á fætur öðrum og bauð fram samráð, bauð fram sína yfirsýn og sína þekkingu og sitt innsæi til þess að hjálpa til. Það var enginn áhugi á því hjá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra og í þeim dúr er ákvörðunin sem fram kom á fundi þingflokksformanna í morgun, að í stað þess að ræða þá grafalvarlegu stöðu sem upp er komin og freista þess að ná einhverri samstöðu um lausn í því máli, hvað viljum við þá ræða? Við viljum ræða ágengar tillögur meiri hluta atvinnuveganefndar sem eru til þess fallnar að setja hér allt í uppnám, inni í þingsalnum og fyrir utan þinghúsið (Forseti hringir.) vegna þess að það verður aldrei — það verður aldrei, virðulegur forseti, friður um breytingartillögu Jóns Gunnarssonar um rammaáætlun.