144. löggjafarþing — 104. fundur,  11. maí 2015.

áherslumál ríkisstjórnarinnar.

[16:58]
Horfa

Ögmundur Jónasson (Vg):

Hæstv. forseti. Ég vil að það komi fram að á þingflokksfundum Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur nákvæmlega þetta komið fram af hálfu formanns þingflokksins. Þar hefur verið reynt að taka þá umræðu sem hefur átt sér stað hér síðasta klukkutímann og færa hana inn í einhvern skynsamlegan farveg þar sem fólk kemst og flokkarnir komast að sameiginlegri niðurstöðu um þinghaldið fram undan. Samkvæmt þingáætlun var stefnt að því að ljúka þinginu fyrir lok maímánaðar, þegar þetta mál síðan kemur inn á okkar borð.

Ég kvaddi mér hljóðs fyrst og fremst til að vekja athygli á því að nákvæmlega þessi sjónarmið hafa verið viðruð af hálfu þingflokskformanns okkar á fundi með forseta þingsins. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)