meðferð og sala eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Það tókst aldrei samkomulag við kröfuhafana í SpKef og Byr um skuldaskil og þar með varð aldrei friður um stofnefnahagsreikning þeirra. Þess vegna var hluturinn aldrei færður yfir til Bankasýslu ríkisins. Ég veit ekki hversu oft á að endurtaka þetta, þetta er ekkert flóknara en þetta.
Ég vék áðan að því með hvaða hætti menn væru alltaf að nálgast umræðuna um skuldaskil milli hinna föllnu banka og annað og því er gott að sjá í frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra ákveðna staðfestingu á því sem oft hefur verið haldið fram. Í greinargerð þess segir:
„Ríkið átti í raun aldrei þær eignir og skuldir sem fluttar voru úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju og því nær að tala um að ríkið, með eiginfjárframlagi sínu, hafi eignast 81%, 5% og 13% hluti í nýju bönkunum í tengslum við endurreisn viðskiptabanka eftir hrunið, frekar en að eiginleg sala á hlutabréfum hafi átt sér stað.“
Má ég þá biðja hv. stjórnarþingmenn um að hætta dylgjum sem alltaf fylgja í umræðum um þessi mál og fylgja fordæmi og þeirri leiðsögn sem er að finna frá hæstv. fjármálaráðherra að þessu leyti.