144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

störf þingsins.

[13:45]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F):

Hæstv. forseti. Nýlega gerði landlæknisembættið úttekt á barna- og unglingageðdeild Landspítalans, eða BUGL eins og við köllum deildina í daglegu tali. Markmið úttektarinnar var að skoða öryggi og gæði valinna þjónustuþátta í þeim tilgangi að koma með leiðir til úrbóta. Úttektin tók til margra þátta, t.d. til þjónustu, gæða, öryggis, mannauðsmála og húsnæðis. BUGL, sem ég ætla að leyfa mér að kalla stofnunina í ræðunni, hefur innan sinna raða mjög hæft og metnaðarfullt starfsfólk sem sinnir starfi sínu af mikilli fagmennsku, en í úttektinni kom fram að biðlistar eftir greiningu séu allt að 18 mánuðir. Þetta er ekki nýtt vandamál og þetta er ekki eitthvað sem er að gerast fyrst núna.

Eftir að hafa starfað í kennslu og með börnum og unglingum til margra ára þá veit ég að þetta er vandamál sem hefur varað hér á Íslandi í fjölda ára. En við þessu verðum við bregðast og ánægjulegt er að sjá að ríkisstjórnin gaf í er varðar heilbrigðismálin í síðustu fjárlögum og hefur landlæknir staðfest það í ýmsum þáttum. En það er mikilvægt að við aukum enn frekar í þennan málaflokk því að við sjáum það að ef við komum fram og hjálpum þeim einstaklingum sem eiga í vanda fyrr en síðar þá skilar það sér í auknum lífsgæðum fyrir viðkomandi einstaklinga, það skilar sér í því að þeir geta fyrr komist í skóla, fyrr komist út á vinnumarkað og fyrr tekið þátt í öllu daglegu amstri og daglegu lífi. Það er mjög hagkvæmt þrátt fyrir að við þyrftum að setja aukið fjármagn akkúrat á þessari stundu, þá er þetta hagkvæmt til framtíðar. Það kemur fram í þessari greiningu að álagið er mikið, það er of fátt starfsfólk innan deildarinnar, þetta eru ekki álagstoppar heldur varir álagið allan ársins hring. Við verðum því að bregðast við.