144. löggjafarþing — 105. fundur,  12. maí 2015.

störf þingsins.

[14:01]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Ég var nú að hugsa um að tala hérna um störf þingsins, undir þessum dagskrárlið, svona til tilbreytingar. Það er víst þriðjudagurinn 12. maí í dag og fróðir menn segja að eftir séu átta reglubundnir þingfundardagar samkvæmt starfsáætlun. Vandi okkar, eins og hann blasir við mér, er sá að landið er verkstjórnarlaust, þ.e. ríkisstjórnin er stjórnlaus. Þar er engin verkstjórn og það birtist meðal annars í því að mál sitja föst hvert á fætur öðru, hvort sem það er fiskur eða húsnæðismál eða samgönguáætlun, sem ekki lítur hér dagsins ljós annað árið í röð, eða þingsályktunartillaga sjávarútvegsráðherra um meðferð veiðiheimilda í hliðarráðstöfunum í kvótakerfinu. Önnur frumvörp ná kannski hingað inn en deyja svo kvalafullum dauðdaga ef ekki í 1. umr. þá í nefnd, eins og náttúrupassinn og væntanlega núna Bankasýslan. Þetta talar sínu máli um ástandið á stjórnarheimilinu.

Engu að síður er það svo, hvað þingið varðar, að hér liggur eftir talsverð uppskera af nefndastarfi vetrarins, sennilega milli 20 og 30 frumvörp og þingmál bíða nú tilbúin til 2. umr. eftir umfjöllun í nefnd eða seinni umræðu og mörg hver í alveg ágætri samstöðu, kannski einhverjir fyrirvarar en sameiginleg nefndarálit. Þá ber svo við að sett er á dagskrá umdeildasta sprengiefni vetrarins, handaflstillaga hv. þm. Jóns Gunnarssonar um valdbeitinguna gagnvart rammaáætlun. Eins og við þurfum nú á frekari ófriði að halda, virðulegur forseti.

Ríkisstjórnin er verklaus og við getum lítið gert í því, að minnsta kosti stjórnarandstæðingar, en þingið gæti, í sínum störfum og með sinni dagskrá, sýnt að við værum að vinna okkar vinnu hér. Við gætum á næstu dögum afgreitt 20 til 30 frumvörp og gert þau að lögum í ágætri sátt í staðinn fyrir að hleypa öllu í uppnám hér innan veggja Alþingis líka, en það gerir (Forseti hringir.) núverandi dagskrá þingsins því miður, forseti, og þar berum við ábyrgð (Forseti hringir.) sem eigum að stjórna málum þingsins.